Týndir þú jólapeningunum í Kringlunni? 16. desember 2007 17:08 Peningarnir fundust á bílastæði Kringlunnar. „
Við vorum í Kringlunni í gær sem er ekki í frásögur færandi nema það að við fundum peninga á bílastæðinu sem við vildum gjarnan koma til skila," segir kona sem hafði samband við Vísi í dag. Hún var með fjölskyldunni að versla jólagjafir þegar hún rekur augun í peningana en hún vill ekki gefa upp hversu há upphæðin er. „Ég vil ekki gefa upp of miklar upplýsingar svo það hafi ekki 500 manns samband og þykist eiga peningana," segir konan sem fann peningana á milli 17:00 og 18:00 í gær. Hún hefur nú þegar haft samband við þjónustuborðið og öryggisgæslu Kringlunnar en engin kannast við neitt þar. „Ef einhver kannast við að hafa týnt peningum þá væri gott ef hann hefði samband. Viðkomandi þarf að geta gefið upp hversu mikið þetta er og hvernig þetta er samsett en þetta er allt í seðlum. Einnig væri gott ef viðkomandi gæti gefið upp á hvaða bílastæði þetta var," segir konan sem hugsaði aldrei um að stinga peningunum í vasann sjálf. „Ég efast ekki um að einhverjir hefðu gert það en það hvarflaði ekki að mér." Ef einhver kannast við að eiga þessa peninga er hann beðinn um að senda póst á netfangið ritstjorn@visir.is með framangreindum upplýsingum.
Mest lesið Hæstiréttur í Bretlandi dæmir Auðuni Má í vil Fréttir Lak trúnaðargögnum um Icesave til viðskiptamógúls Erlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Gífurlegt mannfall en litlar breytingar á víglínunni Erlent Landfylling í Skerjafirði: Óttast að borgin vaði af stað Innlent Safnstjórinn segir þessa flugvél merkasta gripinn Innlent „Þá er Ísland kannski næsti biti“ Innlent Fjölmargir Íslendingar á ADHD-lyfjum sviptir bílprófi Innlent Tveir handteknir fyrir stórfellda líkamsárás og vörslu fíkniefna Innlent Skotinn til bana við að ógna lögreglumönnum með hníf og skærum Erlent Kanna samninga við Klíníkina vegna „hamfaraástands“ Innlent Fleiri fréttir Hæstiréttur í Bretlandi dæmir Auðuni Má í vil Safnstjórinn segir þessa flugvél merkasta gripinn Herþotur frá Svíþjóð, Danmörku og Þýskalandi á Íslandi Tveir handteknir fyrir stórfellda líkamsárás og vörslu fíkniefna Landfylling í Skerjafirði: Óttast að borgin vaði af stað Loðnutorfur á hraðferð með suðurströndinni „Þá er Ísland kannski næsti biti“ Algjör samstaða sé um að hækka bætur Kanna samninga við Klíníkina vegna „hamfaraástands“ Vildi fá hestinn endurgreiddan þar sem hann var með aukatönn Viðræður við Klíníkina, barátta stórvelda og Breiðholt Got Talent Óðinn Svan leiðir L-listann Siguðu lögreglu á sofandi fastakúnna „Ég hef aldrei séð svona samninga“ Tveir veiðimenn fengu tvær milljónir frá Hval Boðar tímabundna heimild svo unnt sé að senda erlenda fanga fyrr úr landi Kominn undan feldi og svarið er nei Féll allt að tuttugu metra við foss á Snæfellsnesi Bíða enn gagna mánuði frá upphafi rannsóknar Gagnrýnin byggi „að miklu leyti á misskilningi“ Framlag Íslands mun minna en annarra Norðurlanda Á leið til Íslands átta vikum eftir slysið VG vex og býður á stefnumót og Vor til vinstri leitar að fólki Allt rykbindiefni búið Fjölmargir Íslendingar á ADHD-lyfjum sviptir bílprófi Bruninn látinn klára sig og vettvangur afhentur lögreglu Framlag Íslands hlutfallslega lítið og svifrykið hrellir borgarbúa Dorrit líkaði aldrei við „slepjulegan“ Epstein Tveggja bíla árekstur á Hellisheiði Fá sálfræðitíma en vilja bætur Sjá meira