Innlent

Fimm teknir fyrir ölvunarakstur í gær og nótt

MYND/Hari

Fimm ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu í gær og nótt.

Þrír þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og tveir í Kópavogi. Þetta voru þrír karlar, 26, 37 og 65 ára, og tvær konur, 21 og 31 árs. Þá voru tvær aðrar konur, 18 og 25 ára, teknar fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna í nótt en þær voru stöðvaðar í Reykjavík og Kópavogi. Í bíl eldri konunnar fundust einnig ætluð fíkniefni og talsvert af lyfjum eftir því sem segir í frétt lögreglunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×