Bilanir á flutningskerfi höfðu áhrif á alla stóriðju á suðvesturhirnin 13. desember 2007 13:10 MYND/Vilhelm
Bilun sem varð á svokallaðri Brennimelslínu í Hvalfirði í nótt vegna illviðris hafði áhrif á alla stjóriðju á suðvesturhorninu og þá varð einnig truflun á starfsemi Fjarðaáls í Reyðarfirði í skamman tíma vegna bilunar á byggðalínu. Fram kom í tilkynningu Landsnets í morgun að alvarleg bilun á Brennimelslínu hefði orðið þegar stálgrindarmastur í Hvalfirði gaf sig undan veðurhamnum. Við það fóru út skáli 2 hjá Norðuráli á Grundartanga, álag í skála 3 hjá Alcan í Straumsvík og allt álag hjá Járnblendiverskmiðjunni á Grundartanga. Þar að auki fóru allar vélar Hellisheiðarvirkjunar úr rekstri vegna bilunarinnar. Að sögn Nils Gústavssonar, deildarstjóra kerfisstjórnunar hjá Landsneti, eru álverin tvö viðkvæm fyrir truflunum á stofnlínum, sérstaklega í áðurnefndum skálum. „Þegar svona skammhlaup verður þurfa þau að minnka álagið og það hefur áhrif á rekstur veranna," segir Nils. Viðgerðarmenn á vegum Landsnets vinna enn að því að laga Brennimelslínu og segir Nils að allur kraftur sé lagður í að koma henni í rekstur fyrir fyrramálið. „Það er aftur spáð vondu veðri þá og það eru ákveðnar líkur á truflunum af þeim sökum og við viljum því hafa kerfið sem sterkast," segir Nils. Bilanir og rekstrartruflanir hafa ekki haft áhrif á almenna notendur á suðvesturhorninu en á Vestfjörðum er keyrt á díselvélum þar sem svokölluð Geirdalslína 1 í Saurbæ bilaði í nótt þegar tvær tréstæður brotnuðu. Vestfirðir eru því ekki tengdir meginflutningskerfi landsins á meðan á viðgerð á línunni stendur. Aðspuður hvernig flutningskerfið geti staðið af sér ítrekað illviðri eins og undanfarna daga og næstu daga segir Nils að það fari allt eftir vindátt og hvernig hviður komi á línur. Mjög slæmt veður hafi verið mánudag án þess að nokkur truflun hafi orðið á flutningskerfi raforkunnar. Því sé erfitt að spá fyrir um hvernig kerfið bregðist við hverju sinni.
Mest lesið Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Innlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Haraldur konungur lagður inn á spítala Erlent Fleiri fréttir Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Loka brúnni yfir Borgarfjörð í tvær nætur Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Sjá meira