Skúta sprakk í tætlur í illviðri á Ísafirði 13. desember 2007 12:24
Fárviðri geisaði á Ísafirði í nótt og fram á morgun og þeytti meðal annars stórum vöruflutningavagni mörg hundruð metra. Þá sprakk skúta í tætlur og þakplötur liggja eins og hráviði um alla Eyrina. Fyrst geysaði stórviðri úr suðaustri en undir morgun datt allt í dúnalogn. Skömmu síðar var eins og hleypt væri af byssu úr suðvestri og fór vindurinn upp undir 60 metra á sekúndu í kviðum. Háir vinnupallar við Norðurtangahúsið hrundu eins og spilaborg, stór ruslagámur valt eins og eldspýtnastokkur og þaköplötur fóru meira að segja að fjúka að björgunarsveitarhúsinu. Björgunarsveitarmenn hjálpuðu lögreglu að sinna fjölda útkalla og eru ýmsar skemmdir að koma í ljós nú í birtingunni og eftir að vind tók að lægja. Suðvesturhornið fór heldur ekki varhluta af veðrinu í gærkvöldi og fram á nótt. Björgunarsveitarmenn, lögregla og slökkviliðsmenn sinntu hátt í 150 útköllum á höfuðborgarsvæðinu í nótt vegna foks af ýmsu tagi. Sömu sögu er að segja af Suðurlandi, Reykjanesi og úr Borgarflirði. Meðal annars fauk stór bátur á þurru landi af stað í Kópavogi, uppsláttur að einbýlishúsi við Þjórsárver í Flóa splundraðist, kerra fauk á farþegaþotu á Keflavíkurflugvelli þannig að gat kom á skrokk hennar, bensíndælur fuku um koll á bensínstöð í Reykjavík, 300 fermetra stálgrindarsekmma fauk langar leiðir á Akranesi og gjöreyðilagðist og bílar skemmdust þegar auglýsingaskilti féll á þá á Ártúnshöfða, svo eitthvað sé nefnt. Þegar ljóst varð í hvað stefndi var samhæfingastöðin í Skógarhlíð í Reykjavík virkjuð fulltrúum almannavarna, lögreglu, slökkviliðs og björgunarsveita. Þar vöktuðu menn ástandið framundir klukkan sex í morogun
Mest lesið Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Erlent Jarðskjálfti við Kleifarvatn Innlent Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Erlent Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Innlent Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Erlent Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Innlent Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Innlent Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Innlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Sjá meira