Rafvirkjalaust á Landspítala innan skamms 13. desember 2007 12:10
Sextán rafvirkjar af átján sem vinna á Landspítalanum hafa sagt upp störfum, sumir hverjir eftir áratuga langt starf, vegna óánægju með launakjör. Það verður því rafvirkjalaust á spítalanum innan skamms þar sem hinir tveir sem ekki sögðu upp fara á eftirlaun fljótlega. Rafvirkjarnir sextán sögðu upp um síðustu mánaðarmót eftir að niðurstöður launakönnunar sem Capacent Gallup gerði fyrir Rafiðnaðarsambandið í ágúst var birt. Að sögn Páls Brynjar Arasonar, trúnaðarmanns rafvirkjanna, kom þar í ljós að laun rafvirkja við Landspítalannn hefðu ekki fylgt launaþróun og var því farið fram á leiðréttingu. Þegar ekki var orðið við því hafi rafvirkjarnir ákveðið að segja upp. Páll segist ekki bjartsýnn á að málin verði leyst og því séu menn farnir að leita sér að vinnu annars staðar. Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambandsins, sagði í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 í morgun að mikil óánægja hafi sprottið meðal rafvirkjanna eftir fund með rekstrarstjóra spítalans og viðbrögð hans þótt einkennileg. Guðmundur segir flesta rafvirkjana hafa unnið á spítalanum í áratugi og ljóst sé að mikið hafi þurft til að menn segðu upp störfum. Hann segir Rafiðnaðarsambandið ekki koma að aðgerðum rafvirkjana en vissulega sé það áhyggjuefni að svona skuli fara. Hins vegar sé mikil eftirspurn eftir rafvirkjum á almennum markaði því sé óljóst hvernig Landspítalinn hyggst leysa þann vanda sem skapast á spítalanum þegar menn láta af störfum þann 1. mars næstkomandi.
Mest lesið Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Innlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Haraldur konungur lagður inn á spítala Erlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Fleiri fréttir Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Loka brúnni yfir Borgarfjörð í tvær nætur Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Sjá meira