Alvarlegar bilanir á flutningskerfi Landsnets í nótt 13. desember 2007 11:29 MYND/GVA
Alvarlegar bilanir og rekstrartruflanir urðu á flutningskerfi Landsnets í nótt þegar djúp lægð gekk yfir vestanvert landið með ofsaveðri. Fram kemur í tilkynningu frá Landsneti að laust fyri klukkan tvö hafi Vatnshamralínu 1 slegið út með þeim afleiðingum að spennir fór út í aðveitustöðinni í Laxárvatni við Blönduós auk þess sem einn skáli Fjarðaáls á Reyðarfirði fór út. Við það einangraðist Fljótsdalsstöð frá kerfinu. Þá fór í stuttan tíma út um 20 megavattaálag hjá almennum notendum á Austurlandi. Við þetta fór einnig út Hólalína 1 og báðar vélar fóru út í Kröflustöð. Í tengslum við þessa truflun á vesturvæng kerfisins fór einnig út Laxárlína 1, frá Laxá til Rangárvalla á Akureyri. Ekki er vitað um ástæðu þess að Vatnshamralína 1 fór út en leiða má að því líkum að um samslátt á vírum hafi verið að ræða enda ofsaveður á svæðinu. Línan fór inn aftur laust eftir klukkan þrjú. Klukkan hálfþrjú varð svo alvarleg bilun í Brennimelslínu 1 þegar turn í Þyrilsnesi í innanverðum Hvalfirði brotnaði undan veðurofsanum. Við þetta fóru út skáli 2 hjá Norðuráli í Hvalfirði, álag fór út hjá Ísal í Straumsvík og allt álagið hjá Járnblendiverksmiðjunni í Hvalfirði. Auk þessa fóru úr rekstri allar vélar í virkjun Orkuveitu Reykjavíkur á Hellisheiði. Þá fór Hrútatungulína 1 úr rekstri um kl. 3.10 með þeim afleiðingum að rafmagnslaust varð víða á Vesturlandi. Þessi rekstrartruflun stóð þó aðeins yfir í nokkrar mínútur. Að lokum varð alvarleg bilun í Geiradalslínu 1 klukkan hálffimm þegar tvær tréstæður brotnuðu við Gilsfjörð í Saurbæ. Starfsmenn Landsnets hafa unnið að viðgerð Brennimelslínu 1 í Hvalfirði og Geiradalslínu 1 í Saurbæ frá því í nótt ásamt með verktökum. Viðgerð verður hraðað eins og kostur er en ekki er hægt að segja nákvæmlega til um hvenær þeim verður lokið.
Mest lesið „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Innlent Fleiri fréttir Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Sjá meira