Auðbjörg kaupir eignir Humarvinnslunnar í Þorlákshöfn 12. desember 2007 13:33 MYND/Einar Elíasson
Útgerðarfyrirtækið Auðbjörg ehf. hefur keypt hluta af eignum Humarvinnslunnar í Þorlákshöfn og þannig tryggt að kvóti Humarvinnslunnar verði áfram í bæjarfélaginu. Óvíst er þó hversu margir fá vinnu í frystihúsi Humarvinnslunnar en þar var öllu starfsfólki sagt upp í lok september. Fram kemur í tilkynningu frá félögunum tveimur að Auðbjörg kaupi fiskiskipið Ársæl ÁR-66 með veiðiheimildum í humri og einnig starfstöð Humarvinnslunnar, en það er frystihús sem er sérhæft til vinnslu á humri og flatfiski. Auðbjörg tekur við eignunum nú um miðjan mánuðinn og hyggst áfram reka bæði Ársæl og frystihúsið en væntanlega með breyttum áherslum. Frá sama tíma hættir Humarvinnslan fiskverkun og útgerð. Humarvinnslan tilkynnti í lok september að öllum starfsmönnum í landvinnslu, alls 59 manns, yrði sagt upp og var ástæðan meðal annars hráefnisskortur, þar á meðal vegna skerðingar á þorskkvóta, og óhagstæð gengisþróun. Uppsagnarfrestur flestra starfsmannanna lýkur nú um áramót. Auðbjörg hefur í nærri 40 ár starfað í Þorlákshöfn og er í eigu Einars Friðriks Sigurðssonar og fjölskyldu hans. Félagið hefur undanfarin ár gert út þrjá báta, á snurvoð, línu og til neta og humarveiða. Þá hefur fyrirtækið rekið saltfiskverkun og sjófrystingu. Einar sagði í samtali við Vísi í dag að viðræður um kaup á eignum Humarvinnslunnar hefðu ekki haft langan aðdraganda. Aðspurður um það hversu margir myndu fá vinnu áfram í frystihúsi Humarvinnslunnar sagði ómögulegt að segja til um það. Farið yrði yfir það á næstunni en það yrði að líkindum einhver hópur starfsmannanna.
Mest lesið „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Innlent Fleiri fréttir Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Sjá meira