Kynferðisbrotum gegn börnum fjölgar um 50% 12. desember 2007 11:39 Frá Barnahúsi
Í nýrri skýrslu ríkislögreglustjóra um afbrotatölfræði árið 2006 kemur fram að kynferðisbrotum gegn börnum 14 ára og yngri fjölgaði á árinu um 50% frá meðaltali síðustu fimm ára Í samantekt lögreglu á helstu niðurstöðum segir: Skráðum hegningarlagabrotum fjölgar aðeins á milli áranna 2005 og 2006 en eru þó umtalsvert færri en þau voru á árabilinu 2001-2004. Það sama á við um umferðarlagabrot, þau eru fleiri en árið 2005 en færri en á árunum 2001-2004. Hraðakstursbrot hafa hins vegar aldrei verið fleiri og fjöldi ölvunarakstursbrota var meiri en síðastliðin fimm ár. Brot vegna þess að bílbelti voru ekki notuð voru 1.855 sem er fækkun frá meðaltali 2001-2005. Þjófnaðarbrot voru 3.457 sem er fjölgun frá síðustu tveimur árum á undan en innbrot voru fátíðari en meðaltal fimm fyrri ára. Flest innbrot voru framin í íbúðarhúsnæði (34%) og á bifreiðastæðum (28%). Alls voru 50 rán tilkynnt sem er svipaður fjöldi og árið 2005. Tilkynnt var um 281 kynferðisbrot til lögreglu árið 2006 sem er svipaður fjöldi og árið 2005. Þá voru skráðar 67 nauðganir en brotin voru 64 að meðaltali 2001-2005. Kynferðisbrot gegn yngri en 14 ára voru 50% fleiri en meðaltal fimm fyrri ára segir til um en mök við börn uppalanda hins vegar 26% færri en meðaltal 2001-2005. Ekkert manndráp var framið á Íslandi árið 2006 en tilkynnt um sjö manndrápstilraunir til lögreglunnar. Tilkynnt var um 1.007 líkamsárásir en meðaltal áranna 2001-2005 er það sama. Flestar líkamsárásir (37%) og líkamsmeiðingar (33%) áttu sér stað utandyra, næstflestar í íbúðarhúsnæði (25% líkamsárása og 29% líkamsmeiðinga) og á skemmtistöðum (24% líkamsárása og 29% líkamsmeiðinga). Árið 2006 voru skráð fíkniefnabrot 2.098 sem er 55% fjölgun miðað við meðaltal síðustu fimm ára. Brot er vörðuðu innflutning voru um 30% færri árið 2006 en meðaltal 2001-2005 en brot vegna vörslu og neyslu fíkniefna voru um 80% fleiri. Tekin voru rúm 28 kíló af kannabislaufum, tæp 47 kíló af amfetamíni og tæp 13 kíló af kókaíni og hefur haldlagt magn þessara efna aldrei verið meira.
Mest lesið WhatsApp-skilaboð Auðuns til konunnar ekki metin gild Innlent „Hrækjandi drullu eins og maður sé að steypa án grímu“ Innlent Lak trúnaðargögnum um Icesave til viðskiptamógúls Erlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Gífurlegt mannfall en litlar breytingar á víglínunni Erlent Kjartan er kominn heim til Íslands Innlent Eitrað fyrir Navalní með froskaeitri Erlent Ný samræmd próf lögð fyrir Innlent Safnstjórinn segir þessa flugvél merkasta gripinn Innlent Landfylling í Skerjafirði: Óttast að borgin vaði af stað Innlent Rósin segir sig úr fulltrúaráði Samfylkingarinnar Innlent Fleiri fréttir Rósin segir sig úr fulltrúaráði Samfylkingarinnar Ný samræmd próf lögð fyrir Framsókn þurfi að þora að svara rangfærslum og hálfsannleik popúlista „Hrækjandi drullu eins og maður sé að steypa án grímu“ Kjartan er kominn heim til Íslands Aldrei fleiri útskrifast frá Bifröst Gagnrýnir hversu seint og illa endurreisn Grindavíkur gengur Íslendingar stemmningsfólk sem taki öllum gleðidögum fagnandi Bein útsending: Sigurður Ingi ávarpar Framsóknarmenn í síðasta sinn sem formaður Segir einkaðila ekki hafa fengið svör í marga mánuði Ánægja með bæjarstjórann en Sjálfstæðismenn með mest fylgi Uppnám á bráðamóttökunni og seinagangur í Grindavík Fluttur á sjúkrahús eftir líkamsárás í Grafarvogi WhatsApp-skilaboð Auðuns til konunnar ekki metin gild Safnstjórinn segir þessa flugvél merkasta gripinn Herþotur frá Svíþjóð, Danmörku og Þýskalandi á Íslandi Tveir handteknir fyrir stórfellda líkamsárás og vörslu fíkniefna Landfylling í Skerjafirði: Óttast að borgin vaði af stað Loðnutorfur á hraðferð með suðurströndinni „Þá er Ísland kannski næsti biti“ Algjör samstaða sé um að hækka bætur Kanna samninga við Klíníkina vegna „hamfaraástands“ Vildi fá hestinn endurgreiddan þar sem hann var með aukatönn Viðræður við Klíníkina, barátta stórvelda og Breiðholt Got Talent Óðinn Svan leiðir L-listann Siguðu lögreglu á sofandi fastakúnna „Ég hef aldrei séð svona samninga“ Tveir veiðimenn fengu tvær milljónir frá Hval Boðar tímabundna heimild svo unnt sé að senda erlenda fanga fyrr úr landi Kominn undan feldi og svarið er nei Sjá meira