Innlent

Illa unnin frumvörp um tilfærslu verkefna innan Stjórnarráðs

Þingmenn úr Vinstri - grænum og Framsóknarflokknum gagnrýndu á Alþingi í dag hversu illa undirbúin tvö frumvörp ríkisstjórnarinnar um tilfærslu verkefna innan Stjórnarráðsins væru.

Atkvæðagreiðsla var eftir aðra umræðu um frumvörpin tvö í morgun. Annað þeirra kveður meðal annars á um flutning málefna aldraðra og almannatrygginga frá heilbrigðisráðuneytinu til félagsmálaráðuneytisins. Í því er einnig bráðabirgðaákvæði um að koma á fót stofnun sem hefur meðal annars það hluverk að annast kaup, greiðslur og samninga um heilbrigðisþjónustu og framkvæmd þeirra málaflokka almannatrygginga sem heyra undir heilbrigðisráðherra. Er ráðherra falið að skipa forstjóra stofnunarinnar og sömuleiðis stjórn.

Skrifað upp á óútfylltan tékka fyrir heilbrigðisráðherra

Álfheiður Ingadóttir úr Vinstri - grænum gagnrýndi að til stæði að skipa forstjóra og stjórn þessarar stofnunar en hins vegar ætti ekki að leggja fram frumvarp um stofnunina í vor. Vildi hún að þetta bráðabirgðaákvæði í frumvarpinu yrði tekið út. Þá sagði flokksbróðir Álfheiðar, Ögmundur Jónasson, að verið væri að koma á fót verslunarstofnun fyrir heilbrigðisþjónustu í landinu og Samfylkingin hefði skrifað upp á óútfylltan tékka fyrir heilbrigðisráðherra í málinu.

Þingmenn Framsóknarflokksins gagnrýndu einnig frumvarpið og sömuleiðis frumvarp um tilfærslu verkefna innan Stjórnarráðsins. Sagði Siv Friðleifsdóttir, þingflokksformaður Framsóknar, að verið væri að búa til örráðuneyti fyrir Samfylkinguna og vísaði þar til aðskilnaðar viðskiptaráðuneytisins og iðnaðarráðuneytisins.

Skemmdarverk framin á Stjórnarráðinu

Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins. sagði breytingum á stjórnarráðinu troðið í gengum kok stjórnarþingmanna og að breytingarnar myndu að líkindum kosta íslenska skattgreiðendur um einn milljarð króna.

Þessar breytingar hefðu enn fremur leitt til þess að brostið hefði á flótti starfsmanna úr ráðuneytunum og harmaði Guðni að jafnhófstilltur maður og Geir H. Haarde forsætisráðherra hefði framið þetta skemmdarverk. Lýsti hann jafnframt vantrausti á Sjálfstæðisflokkinn.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×