250 skjálftar við Upptyppinga frá því á föstudag 10. desember 2007 12:08
Um tvöhundruð og fimmtíu skjálftar hafa mælst við Upptyppinga frá því á föstudag. Aðeins hefur grynnkað á skjálftunum frá því í vor þegar skjálftahrinur hófust á svæðinu. Fyrstu skjálftahrinurnar við Upptyppinga mældust í febrúar en þá voru skjálftarnir á 19 til 20 kílómetra dýpi. Hrinunum fjölgaði síðan mjög í sumar og við hverja þeirra grynnkaði á skjálftunum. Sýna mælingar jarðfræðinga að skjálftarnir færast um hálfan kílómetra ofar í kvikunni á mánuði. Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur sagði í fréttum Stöðvar 2 í lok október að þegar kvikan sem þarna er á hreyfingu næði föstu bergi, sem er á um 8 kílómetra dýpi, gæti hún leitað upp á yfirborðið sem Dyngjugos. Skjálftahrinan nú hófst um hádegi á föstudag og stóð samfellt fram til klukkan fjögur í nótt. Alls hafa um 250 skjálftar mælst á svæðinu og eru þeir á um 14 kílómetra dýpi. Bergþóra Þorbjarnardóttir, jarðeðlisfræðingur á Veðurstofunni, segir það vera í samræmi við fyrri mælingar, það er reglulega grynnkar á skjálftunum og æ fleiri skjálftar leita ofar. Eins hafa skjálftarnir færst smám saman í norðaustur og eru nú um sjö kílómetrum norðaustan við svæðið þar sem þeir mældust í upphafi. Þeir séu þó enn á Kverkfjallasprungusvæðinu og enn sem komið er sé lítil hætta á eldgosi.
Mest lesið Kosningavaktin: Sjálfstæðisflokkurinn fagnaði um allt land Innlent Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Innlent Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Innlent Lokatölur í Reykjavík: Sjálfstæðisflokkurinn nær níunda manni inn Innlent Áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina Innlent Hildur með pálmann í höndunum Innlent „Hvað sagðiru, 42? Það er geðveikt!“ Innlent Ingibjörg Sólrún biður Guðmund Árna afsökunar Innlent Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Innlent Stefán Pálsson og Vinstrið sleikja sárin Innlent Fleiri fréttir Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Áttu góðan og langan fund í dag Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Gaf börnum bjór í strætó og hvarf Meirihlutar féllu víða en héldu velli annars staðar Niðurstaðan merki ekki endalok Pírata Lokatölur úr Dalvíkurbyggð: Meirihlutinn heldur Hreinn meirihluti Vegvísis Konur meirihluti fulltrúa í Kópavogi, Árborg og Múlaþingi Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Ingibjörg Sólrún biður Guðmund Árna afsökunar Áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina „Nú er Hildur'ann – línur verða logandi“ Lokatölur í Bolungarvík: Máttur meyja og manna missir mann og meirihluta Meirihlutaviðræður í vikunni Lokatölur í Sveitarfélaginu Stykkishólmur: Óbreytt staða Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Lokatölur í Húnabyggð: D listinn bætir við sig og nær meirihluta Lokatölur á Skagaströnd: Hjón náðu inn fyrir sitt hvorn listann Lokatölur í Langanesbyggð: Oddvitinn síðastur inn í óbundnum kosningum Bein útsending: Kosningaveisla á Sprengisandi Stefán Pálsson og Vinstrið sleikja sárin Margt í miðborginni og annríki hjá lögreglu Hildur með pálmann í höndunum Lokatölur úr Flóahreppi: Meirihlutinn bætti við sig manni Lokatölur í Garðabæ: Sjálfstæðismenn bæta við sig fulltrúa Lokatölur í Kópavogi: Ásdís með hreinan meirihluta Lokatölur í Reykjavík: Sjálfstæðisflokkurinn nær níunda manni inn Mótframbjóðendur „hvísla ástarorðum“ Sjá meira