Óhjákvæmilegt að fella niður veggjald í Hvalfjarðargöngum 10. desember 2007 12:02
Oddviti Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi segir óhjákvæmilegt veggjald í Hvalfjarðargöngunum verði fellt niður. Að öðrum kosti verði að taka upp gjöld á öðrum stöðum á þjóðveginum. Samgönguráðherra segir málið ekki á dagskrá. Fyrirtækið Spölur hf. rekur Hvalfjarðargöngin og hefur, í samræmi við samning við ríkið, heimild til að innheimta veggjald af þeirri umferð sem fer um göngin til ársins 2018. Árlega innheimtir fyrirtækið um einn milljarð fyrir utan virðisaukarskatt. Eitt af helstu stefnumálum Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi fyrir síðustu kosningar var að gjaldið yrði fellt niður. Kristján L. Möller, samgönguráðherra, hefur hins vegar þvert á stefnu flokksfélaga sinna í Norðvesturkjördæmi lýst því yfir málið verði ekki sett í forgang innan ráðuneytisins. Í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 vildi hann þó ekki útiloka að málið verði tekið til skoðunar á þessu kjörtímabili en benti á að í samgönguáætlun sé ekki gert ráð fyrir að gjaldið verði fellt niður. Guðbjartur Hannesson, oddviti Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi, sagði í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 í morgun óhjákvæmilegt að gjaldið verði tekið til endurskoðunar enda sé það ósanngjarnt að hans mati. Hann bendir á að hvergi á þjóðveginum sé tekið sérstakt veggjald og því stríði það gegn jafnræðisreglu að rukka sérstaklega fyrir umferð um göngin. Sagði hann ennfremur að það yrðu mikil vonbrigði ef ríkisstjórnin ákveði að breyta engu í þessu máli og að sú niðurstaði muni kalla á að rukkað verði fyrir umferð á fleiri stöðum á þjóðveginum.
Mest lesið Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Skiluðu hagnaði á kosningaári Innlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Innlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Fleiri fréttir Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Áfram auknar líkur á eldgosi Sjá meira