Bílarnir sagðir í vörslu Annþórs Karlssonar 9. desember 2007 16:47 Annþór Kristján Karlsson.
Bifreiðarnar átta sem brunnu í porti í Vogum á Vatnsleysuströnd í morgun, munu hafa verið í eigu eða vörslu Annþórs Kristjáns Karlssonar, samkvæmt heimildum Vísis. Unnið er að rannsókn málsins og mun hún vera á frumstigi og því vildi lögregla ekkert tjá sig um málið að svo stöddu. Portið þar sem sem bílarnir stóðu er við skemmu eina á Hafnargötu 6 við höfnina í Vogum. Heimildir Vísis herma einnig að glæsikerrunum hafi nýlega verið lagt í portinu eða í byrjun vikunnar. Annþór komst í fréttirnar árið 2005 þegar hann var dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir stórfellda líkamsárás. Hann hafði verið eftirlýstur af lögreglu og var handtekinn á Keflavíkurflugvelli þar sem hann reyndi að flýja land. Hann hafði í slagtogi við tvo aðra menn veist að manni, sem lá slasaður í rúmi sínu, og barið hann í líkama og höfuð með trékylfu. Hann á að baki langan sakaferil en lauk afplánun fyrr á árinu. Eigandi skemmunnar, Ólafur Ragnar Guðbjörnsson, segist ekki hafa hugmynd um hvernig stóð á því að bílarnir voru á svæðinu. Hann sagði algengt að fólk geymdi hluti þar og að hann hafi ekki vitað af bílunum. Ólafur var á leiðinni á Hafnarbrautina til þess að kanna aðstæður þegar Vísir talaði við hann en hann sagðist telja að bílarnir hafi verið á lóðamörkum og ekki endilega á lóðinni hans. Skemman, sem Ólafur segir að sé í útleigu, skemmdist ekki í eldhafinu sem var gríðarlega mikið á tíma eins og sjá má á myndunum. Þarna var um að ræða dýrar bifreiðar, engin metin undir átta milljónum og því gæti tjónið verið töluvert yfir 70 milljónum króna. Slökkviliðinu á Suðurnesjum barst tilkynning rétt fyrir klukkan sex í morgun um brunann. Nágrannar í Vogum höfðu vaknað við sprengingar og óhljóð og tilkynntu Neyðarlínunni um brunann. Bifreiðarnar átta í portinu voru flest allar nýjar, meðal annars einn Hummer, tveir BMW og Dodge Viper, þá skemmdist einnig hraðbátur í brunanum. Ekki náðist í Annþór við vinnslu fréttarinnar.
Mest lesið Kosningavaktin: Sjálfstæðisflokkurinn fagnaði um allt land Innlent Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Innlent Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Innlent Áttu góðan og langan fund í dag Innlent Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Innlent Lokatölur í Reykjavík: Sjálfstæðisflokkurinn nær níunda manni inn Innlent Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Innlent Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu Innlent Áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina Innlent „Hvað sagðiru, 42? Það er geðveikt!“ Innlent Fleiri fréttir Alvarlegt bílslys Breiðholtsbraut Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Áttu góðan og langan fund í dag Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Gaf börnum bjór í strætó og hvarf Meirihlutar féllu víða en héldu velli annars staðar Niðurstaðan merki ekki endalok Pírata Lokatölur úr Dalvíkurbyggð: Meirihlutinn heldur Hreinn meirihluti Vegvísis Konur meirihluti fulltrúa í Kópavogi, Árborg og Múlaþingi Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Ingibjörg Sólrún biður Guðmund Árna afsökunar Áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina „Nú er Hildur'ann – línur verða logandi“ Lokatölur í Bolungarvík: Máttur meyja og manna missir mann og meirihluta Meirihlutaviðræður í vikunni Lokatölur í Sveitarfélaginu Stykkishólmur: Óbreytt staða Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Lokatölur í Húnabyggð: D listinn bætir við sig og nær meirihluta Lokatölur á Skagaströnd: Hjón náðu inn fyrir sitt hvorn listann Lokatölur í Langanesbyggð: Oddvitinn síðastur inn í óbundnum kosningum Bein útsending: Kosningaveisla á Sprengisandi Stefán Pálsson og Vinstrið sleikja sárin Margt í miðborginni og annríki hjá lögreglu Hildur með pálmann í höndunum Lokatölur úr Flóahreppi: Meirihlutinn bætti við sig manni Lokatölur í Garðabæ: Sjálfstæðismenn bæta við sig fulltrúa Sjá meira