Hefur ekki hitt dóttur sína í fjóra mánuði 7. desember 2007 13:58 Antonio Gomes Bento með dóttur sína í fanginu.
Á dögunum sagði Vísir sögu Ásthildar Bjartar Pedersen sem sagði farir sínar ekki sléttar af samskiptum sínum við heilbrigðisyfirvöld. Hún er nýflutt til landsins frá Frakklandi með 17 mánaða gamla dóttur sína og sagðist hún alls staðar koma að lokuðum dyrum því hún njóti ekki fullra réttinda hér á landi sökum þess hve stutt er síðan hún fluttist til landsins. Í viðtalinu sagðist hún hafa neyðst til að flýja Frakkland undan ofbeldi sambýlismanns síns. Maðurinn, Antonio Gomes Bento, hafði samband við Vísi og lýsti sinni hlið málsins. Hann segist ekki hafa séð dóttur sína í fjóra mánuði og að Ásthildur neiti að semja við hann um umgengnisrétt. Antonio segir fjarri sanni að hann hafi beitt Ásthildi ofbeldi. Hún hafi hins vegar flutt frá honum þegar hann lenti í fjárhagserfiðleikum en hann rak fyrirtæki í París. Þau kynntust í Portúgal en bjuggu saman í fimm ár í París en giftust aldrei. Hann segir að í allan þann tíma hafi Ásthildur aldrei sakað sig um ofbeldi. Einu sinni hafi þó lögregla verið kölluð til vegan rifrildis þeirra í millum en að það hafi verið fyrir mörgum árum. Maðurinn hefur sett sig í samband við dómsmálaráðuneytið og franska sendiráðið hér á landi til þess að leita aðstoðar í málinu en hefur enn engin viðbrögð fengið. Antonio segir að Ásthildur segi að eina leiðin fyrir hann til þess að hitta dóttur sína sé að hann komi hingað til lands. Hann segir hins vegar að hann sé ekki efnaður maður og að hann hafi því engin ráð á að ferðast reglulega til Íslands með tilheyrandi kostnaði. Hann leggur áherslu á að hann sé ekki að krefjast forræðis yfir stúlkunni, hann vilji einfaldlega fá tækifæri til þess að hitta hana reglulega. Þau Antonio og Ásthildur skildu í góðu að því er Antonio segir og hann grunaði aldrei að hún ætlaði sér að flytja til Íslands. Það hafi hún hins vegar gert án hans vitneskju og áður en dómari í Frakklandi gat farið yfir mál þeirra og úrskurðað um sameiginlegt forræði yfir stúlkunni. Að hans sögn hefur Ásthildur nú krafist þess að hann borgi meðlag með stúlkunni. Hann segist fús til þess að hann setur fram kröfur á móti um að hann fái dóttur sína í heimsókn til Frakklands af og til. Hann bendir á að það hafi verið Ásthildur sem hafi ákveðið að flytjast hingað og því sé það ekki sanngjarnt að allur ferðakostnaður lendi á honum.
Mest lesið Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Innlent Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Innlent Hormússundi lokað á ný Erlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Fleiri fréttir Flugvél lenti í hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Sjá meira