Biskup biðst ekki afsökunar 7. desember 2007 11:21 Karl Sigurbjörnsson, biskup.
Biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson, hefur svarað Siðmennt en félagið krafði hann um afsökunarbeiðni vegna ummæla sem biskup lét falla í 24 Stundum á dögunum. Biskup hefur nú sent Siðmennt opið bréf um hæl þar sem segir meðal annars að félagið hafi undanfarið gengið hart gegn kirkju og kristni með „einstrengislegum málflutningi og kröfum um boð og bönn." Þá segir biskup að félagið hafi sent frá sér bréf og yfirlýsingar, til dæmis til yfirvalda menntamála, „þar sem amast er við m.a. skoðunarferðum í kirkjur, að börn séu látin „lita eða teikna trúarlegar myndir" og „tryggt verði að greinarmunur sé gerður á sagnfræði og goðsögnum í kennslustundum."" Að mati biskups hafa ýmsir talsmenn Siðmenntar hafa leyft sér þann málflutning að tala niðrandi um trú og að krefjast banns við helgileikjum og jólaguðspjalli í skólum. „Ég leyfi ég mér að nota orðið „hatrammur" um þennan málflutning," segir Karl Sigubjörnsson. „Í tillögum sem Siðmennt lagði fram á fundi Menntaráðs Reykjavíkur í febrúar 2005 segir: „Í stað þess (leturbreyting KS) að einskorða kennslu við kristnifræði er heillavænlegt að kenna almenna siðfræði, heimspeki og gagnrýna hugsun."", segir biskup um leið og hann fagnar því ef „Siðmennt vill nú styðja kristinfræðikennslu og trúarbragðafræðslu í skólum, eins og fram kemur í opnu bréfi félagsins til mín. Það er sannarlega gleðilegt ef Siðmennt vill taka þannig höndum saman við Þjóðkirkjuna. Aldrei var brýnna en nú andspænis vaxandi fjölmenningu að efla slíka fræðsla í skólunum og að auka menntun kennara í þessum efnum." „Ég legg mikla áherslu á að trúarbragðafræðsla, kristinfræði og fræðsla um ólík lífsviðhorf fari fram á faglegum forsendum skólans og að fyllsta tillit sé tekið til mismunandi lífs- og trúarskoðana af virðingu og umburðarlyndi. Það gerist ekki með því að útiloka hinn trúarlega þátt og kærar hefðir eins og hatrammlega hefur verið kallað eftir í umræðunni undanfarið," segir Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, að síðustu. Bréf biskups má lesa í heild sinni hér fyrir neðan.
Mest lesið Kosningavaktin: Sjálfstæðisflokkurinn fagnaði um allt land Innlent Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Innlent Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Innlent Lokatölur í Reykjavík: Sjálfstæðisflokkurinn nær níunda manni inn Innlent Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Innlent Áttu góðan og langan fund í dag Innlent Áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina Innlent „Hvað sagðiru, 42? Það er geðveikt!“ Innlent Hildur með pálmann í höndunum Innlent Ingibjörg Sólrún biður Guðmund Árna afsökunar Innlent Fleiri fréttir Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Áttu góðan og langan fund í dag Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Gaf börnum bjór í strætó og hvarf Meirihlutar féllu víða en héldu velli annars staðar Niðurstaðan merki ekki endalok Pírata Lokatölur úr Dalvíkurbyggð: Meirihlutinn heldur Hreinn meirihluti Vegvísis Konur meirihluti fulltrúa í Kópavogi, Árborg og Múlaþingi Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Ingibjörg Sólrún biður Guðmund Árna afsökunar Áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina „Nú er Hildur'ann – línur verða logandi“ Lokatölur í Bolungarvík: Máttur meyja og manna missir mann og meirihluta Meirihlutaviðræður í vikunni Lokatölur í Sveitarfélaginu Stykkishólmur: Óbreytt staða Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Lokatölur í Húnabyggð: D listinn bætir við sig og nær meirihluta Lokatölur á Skagaströnd: Hjón náðu inn fyrir sitt hvorn listann Lokatölur í Langanesbyggð: Oddvitinn síðastur inn í óbundnum kosningum Bein útsending: Kosningaveisla á Sprengisandi Stefán Pálsson og Vinstrið sleikja sárin Margt í miðborginni og annríki hjá lögreglu Hildur með pálmann í höndunum Lokatölur úr Flóahreppi: Meirihlutinn bætti við sig manni Lokatölur í Garðabæ: Sjálfstæðismenn bæta við sig fulltrúa Lokatölur í Kópavogi: Ásdís með hreinan meirihluta Sjá meira