PISA-könnun ekki hafin yfir gagnrýni 7. desember 2007 10:58 MYND/GVA
Ný PISA-könnun um námsárangur grunnskólanema á Íslandi í samanburði við önnur lönd er ekki hafin yfir gagnrýni en niðurstöðurnar ber þó að taka alvarlega. Þetta sögðu þingmenn við upphaf þingfundar á Alþingi í morgun. Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, kvaddi sér hljóðs undir liðnum störf þingsins og benti á að PISA-könnunin sýndi að frammistaða íslenskra grunnskólanema í lestri og stærðfræði hefði versnað frá árinu 2000. Ísland væri undir meðaltai OECD í lesskilningi og náttúrufræðikunnáttu. Benti hann á að sjálfstæðismenn hefðu haft menntamálin á sinni könnu í 16 ár. Ný frumvörp um menntamál, sem ætti að ræða á þingi í dag, myndu ekki leysa vanda menntakerfisins. Sagði hann menntastefnu Sjálfstæðisflokksins hafa fengið falleinkunn með könnuninni. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra sagði hjákátlegt að hlusta á Höskuld tala niður menntakerfið. Benti hún á að Kennarasamband Íslands segði kerfið gott og ekki væri um áfellisdóm að ræða yfir því. Þá sagði hún að helsti áhrifavaldur þess að Íslendingar hefðu komst efst á lífsgæðalista Sameinuðu þjóðanna væru menntamál. Sagði hún niðurstöðu PISA-könnuninar vissulega vonbrigði og skoða þyrfit sérstaklega lesskilning nemenda. Frístundalestur ungmenna hefði minnkað og við því þyrfti að bregðast. Fleiri þingmenn tóku til máls og sögðu könnunina ekki hafna yfir gagnrýni. Þannig benti Katrín Jakobsdóttir, Vinstri - grænum, að fimmtán evrópskir vísindamenn hefðu gagnrýnt könnunina og sagt hana ekki vera fullnaðargreiningu á námi. Guðbjartur Hannesson, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi skólastjóri, sagðist ósammála því að hægt væri að lesa út úr könnunninn samanburð á milli landa. Að halda því fram að lestur og stærðfræði dæmdi allt skólakerfið væri mikill misskilningur.
Mest lesið Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Innlent Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Innlent Hormússundi lokað á ný Erlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Fleiri fréttir Flugvél lenti í hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Sjá meira