Drengurinn enn þungt haldinn - ökumaðurinn ófundinn 1. desember 2007 09:38
Fjögurra ára gamall drengur liggur enn þungt haldinn á gjörgæsludeild eftir að hann varð fyrir bíl í Keflavík í gær. Ökumaður bílsins flúði af vettvangi og er ófundinn. Íbúar við götuna krefjast þess að hámarkshraði þar verði lækkaður. Slysið varð á Vesturgötu í Keflavík um fimmleytið í gær. Það var ökumaður bíls sem kom að skömmu eftir að slysið varð sem fann drenginn. Farið var með hann fyrst á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja en síðan með forgangshraði á sjúkrahús í Reykjavík. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lokaði öllum gatnamótum á leið sjúkrabílsins til að hann kæmist sem hraðast á Landspítalann með barnið en aksturinn þangað tók sextán mínútur. Drengurinn liggur nú á gjörgæsludeild Landspítala-Háskólasjúkrahús. Hann er mikið slasaður og er haldið sofandi í öndunarvél. Ökumaðurinn sem kom að slysinu telur sig hafa séð dökka skutbíl aka á brott af slysstað og hefur lögreglan síðan í gær leitað að ökumanni þess bíls. Lögreglan stöðvaði fjölda bíla í gær og skoðaði, hún bankaði einnig upp á hjá fólki grennd við slysstað. Lögreglan hefur hins vegar enn sem komið er litlar vísbendingar um ökumann bílsins sem stakk af. Íbúar við götuna þar sem slysið varð hafa lengi haft miklar áhyggjur af hraðaakstri í götunni en þeir hafa meðal annars sent bæjaryfirvöldum óskir um úrbætur. Í morgun fylltu þeir götuna af bílum til að knýja á um að hraðahindranir verði settar upp í götunni og að hámarkshraði verði lækkaður. Engar hraðahindranir eru á þeim kafla sem slysið varð á og hámarkshraði í götunni er fimmtíu en íbúar vilja að hann sé þrjátíu. Hljóðið var þungt í íbúunum í morgun en þeir segja ótækt að hraðaakstur eigi sér þar stað þar sem fjölmörg börn búi við götuna.
Mest lesið „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira