Innlent

Talsverður eldur í Mörkinni

Frá Mörkinni. Þar kviknaði í Nýbyggingu. Mynd úr safni.
Frá Mörkinni. Þar kviknaði í Nýbyggingu. Mynd úr safni.

Allt tiltækt lið slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var kallað að nýbyggingu í Mörkinni um klukkan hálf tvö í nótt. Talsverður eldur logaði í rafmagnstöflu í kjallara byggingarinnar og lagði mikinn reyk um allt húsið. Að sögn slökkviliðsins var eldsmatur í húsinu mjög lítill og því engin hætta á að eldurinn breiddist út. Slökkvistarf gekk mjög vel og var lokið á fáeinum mínútum.

Slökkviliðið var einnig kallað út vegna elds í ruslagámi við Austurberg um fjögurleytið í nótt. Talið er að um íkveikju hafi verið að ræða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×