Innlent

Krefjast þess að stjórnvöld efni loforð sín

Aðalsteinn Baldursson er formaður Verkalýðsfélags Húsavíkur.
Aðalsteinn Baldursson er formaður Verkalýðsfélags Húsavíkur.

Verkalýðsfélag Húsavíkur og nágrennis krefst þess að stjórnvöld efni loforð um aðgerðir í atvinnumálum í ályktun þar sem félagið harmar uppsagnir nærri tuttugu starfsmanna hjá GPG Fiskverkun og Sniðlum síðustu daga á Raufarhöfn og í Mývatnssveit. Í ályktuninni segir ljóst að þetta sé töluvert áfall fyrir byggðirnar, ofan á áföll síðustu ára með lokun Kísiliðjunnar í Mývatnssveit, loðnubræðslunnar á Raufarhöfn og tilflutnings á veiðiheimildum Jökuls úr byggðarlaginu. Þrátt fyrir loforð stjórnvalda um aðgerðir í atvinnumálum á svæðinu hafi lítið orðið um efndir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×