Innlent

Áframhaldandi vöxtur í greiðslukortaveltu

MYND/Vilhelm

Einkaneysla eykst enn hér á landi samkvæmt tölum Hagstofunnar því kreditkortavelta heimilanna reyndist 18 prósentum meiri í janúar til september í ár en á sama tíma í fyrra. Þá jókst debetkortaveltan um nærri sex prósent á milli og því jókst samanlögð greiðslukortavelta heimilanna um 11,5 prósent á milli ára.

Hins vegar voru um sjö prósentum færri bílar nýskráðir á fyrstu níu mánuðum ársins en á sama tímabili í fyrra. Alls voru nýskráðir bílar frá janúar til október í ár nærri 19.300. Þegar litið er til síðustu tólf mánaða er samdrátturinn í bílainnflutningi rúm ellefu prósent frá fyrra tólf mánaða tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×