Fótbolti

Toshack ósáttur við leikmenn sína

Elvar Geir Magnússon skrifar
John Toshack.
John Toshack.

John Toshack, landsliðsþjálfari Wales, hefur látið leikmenn sína heyra það. Hann segir að þeir séu áhugalausir og það skipti þá engu að spila fyrir þjóð sína.

Um síðustu helgi tapaði Wales 3-1 fyrir Kýpur en liðið mætir San Marínó á morgun. „Leikmennirnir segja auðvitað að þeim sé ekki sama en það hefur ekki sést á vellinum," sagði Toshack.

„Þeir líta á það sem sjálfsagðan hlut að spila fyrir landsliðið. Það er eitthvað sem þarf að breytast," segist Toshack og vill ekki líta á það sem sjálfsagðan hlut að vinna San Marínó meðan ástandið sé svona.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×