Ríkisendurskoðun segir þjónustusamning ófullnægjandi 7. september 2007 10:55
Þjónustusamningur heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis við Sveitarfélagið Hornafjörð um heilsugæslu og öldrunarþjónustu getur ekki að öllu leyti talist fullnægjandi. Þetta er mat Ríkisendurskoðunar sem sent hefur frá sér skýrslu um málið. Engin gæða- og þjónustumarkmið hafa verið sett af hálfu Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands og ráðuneytið hefur ekki þrýst á um að setja slík markmið. Að mati Ríkisendurskoðunar er því óvíst hvort fjárhagslegum hagsmunum ríkisins sé betur varið með því að endurnýja þjónustusamninginn en ef ríkið annaðist reksturinn sjálft í framtíðinni. Þjónustusamningurinn var gerður árið 2003 og var hann í gildi til ársloka 2006. Í stjórnsýsluúttektinni kemur fram að samningurinn uppfylli þær formlegu kröfur sem gerðar hafa verið til slíkra samninga. „Engu að síður er lagt til að í nýjum samningi verði hlutverk aðila betur skilgreind og tilgreint hvernig árangur af honum skuli metinn," segir í tilkynningu frá Ríkisendurskoðun. „Ríkisendurskoðun telur að Sveitarfélagið Hornafjörður hafi að mörgu leyti náð að laga framkvæmd þjónustusamningsins að staðbundnum aðstæðum. Þá hafi Heilbrigðisstofnun Suðausturlands eflt þjónustu sína á sviði heilsuverndar, heimahjúkrunar og öldrunarmála á samningstímanum. Ekki hafi hins vegar tekist að bæta stjórn sveitarfélagsins á þessum málaflokkum, auk þess sem þjónusta lækna hafi dregist saman. Í þessu samhengi ber reyndar að hafa í huga að þjónusta stofnunarinnar hefur nær eingöngu verið mæld út frá magni," segir í tilkynningunni og því bætt við að gæðin hafi enn ekki verið mæld á fullnægjandi hátt. „Vegna ófullnægjandi mælinga á magni og gæðum þeirrar þjónustu sem Heilbrigðisstofnun Suðausturlands veitir telur Ríkisendurskoðun vandséð hvort markmið um bætta nýtingu opinbers fjár hafi náðst. Af þeim sökum sé óvíst hvort fjárhagslegum hagsmunum ríkisins sé betur borgið með nýjum þjónustusamningi en ef ríkið annaðist sjálft reksturinn," segir að lokum.
Mest lesið „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Innlent Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Erlent Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Innlent Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Innlent Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Innlent Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Erlent Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt Innlent Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Erlent Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Innlent „Auðvitað hef ég íhugað það“ Innlent Fleiri fréttir Hrósar olíufélögunum fyrir viðbrögð sín Keyrði niður ljósastaur á Vesturlandsvegi Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Starfsemi gæti hafist í nýjum Listaháskóla innan fjögurra ára Þriðja viljayfirlýsingin frá árinu 2007 undirrituð „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Oddviti Samfylkingar bregst við færslum borgarstjóra Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt „Sá gamli er miklu fallegri“ Bjó sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Fær ár fyrir hvora flösku af amfetabínbasa Segir þekkt andlit mikið auglýst, jafnvel á kostnað málefna Drógu aflvana fiskibát í land „Beinlínis gengið í skrokk á fólki“ Myndskeiðið byggi á „netmemi og tölvuleikjamenningu“ „Auðvitað hef ég íhugað það“ Borgarstjóri í beinni um umdeildar kortafærslur Engin bið eftir plássi á meðferðarheimilum ungmenna Endurgreiddi eftir að fjölmiðlar spurðu út í innkaupakortið Lögregla sögð vilja koma höggi á blaðamenn Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Ótrúlegt kjörtímabil að baki á Vopnafirði Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Stykkishólmur verður að vera annað og meira en svefnpláss Mikil tímamót fyrir Víkinga, byrja á bílastæðum „Ég kýs ekki þau sem vilja rífa höll barnanna“ Borgarstjóri fer í saumana á kortafærslunum Sjá meira