Brotist var inn í einbýlishús við Sigluvog í Reykjavík í kvöld. Lögreglunni barst tilkynning um innbrotið um klukkan hálf tíu.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu er málið enn í rannsókn. Menn frá tæknideild lögreglunnar voru sendir á staðinn en ekki liggur fyrir hversu miklu var stolið.