Innlent

Mun fleiri taka strætó í haust en á sama tíma í fyrra

Mun fleiri taka strætó á höfuðborgarsvæðinu núna í haust en í fyrra, að sögn framkvæmdastjóra Strætó.

Beinharðar tölur um fjölda þeirra sem eru að taka strætó nú í haust samanborið við undanfarin ár eru ekki komnar í hús. En sterkar vísbendingar eru um að tilraun sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu til að fjölga farþegum með því að gefa framhalds- og háskólanemum frítt í strætó sé að lukkast.

Að sögn Reynis Jónssonar, framkvæmdastjóra Strætós, er aukningin umtalsverð. Það sér hann á því að menn þurftu að senda 2-3 aukavagna á fjölmennustu leiðirnar á mestu annatímum á morgnana strax þegar framhaldsskólarnir byrjuðu en ekki 1-2 eins og verið hefur undanfarin ár.

Og það þrátt fyrir þéttari tíðni en var í fyrra en á helstu leiðum gengur strætó núna á kortersfresti en ekki 20 mínútna. Um 30 þúsund strætókort fyrir framhalds- og háskólanema voru gefin út í haust og Reynir telur að um tveir þriðju þeirra séu nú þegar gengnir út.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×