Innlent

Tveir vélhjólamenn slösuðust

Tveir vélhjólamenn slösuðust og tveir aðrir sluppu naumlega þegar þeir voru að forða sér undan bíl, sem kom á móti þeim á öfugum vegarhelmingi á Reykjanesbraut, undir kvöld í gær. Þeir sem slösuðust hlutu meðal annars beinbrot. Tildrög voru þau að bíllinn var að fara fram úr öðrum bíl og ók beint á móti bifhjólamönnunum. Þegar ökumaður varð þeirra var hafði hann ekki svigrúm til að beygja aftur inn á réttan vegarhelming.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×