Lífið

Tívolíið við Smáralind opið

Tívolíð við Smáralind var opnað um helgina. Í ár hafa fjögur ný tæki bæst við flóruna og má því telja næsta öruggt að allir ættu að geta skemmt sér konunglega. Miðaverðið er það sama og hefur verið frá upphafi, miðinn kostar 100 krónur en misjafn er hversu marga miða þarf í hvert tæki.

Þetta er í sextánda skiptið sem tívolíið heimsækir ísland. Tívolíið verður við Smáralind til 12. ágúst og eru opnunartímarnir sem hér segir:

Sun-fim 13:00-22:30

Fös-lau 13:00-23:00






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.