Stallone sektaður fyrir innflutning stera Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir skrifar 21. maí 2007 11:34 Maður verður ekki svona af lýsi eingöngu.
Dómstóll í Ástralíu sektaði Sylvester Stallone í morgun um tæplega sjö hundruð þúsund krónur yrir að hafa undir höndum vaxtarhormónið Jintropin. Vaxtarhormónið og karlhormónið testósterón fundust í farangri Stallones við komuna til Ástralíu í febrúar. Leikarinn var í kynningarferð fyrir nýja mynd sína um boxarann Rocky Balboa. Í dómnum sagði að Stallone hefði ekki getað sýnt fram á að hann hefði lyfseðil fyrir vaxtarhormóninu, þá hafi hann ekki látið tollverði vita af testósteróninu, þrátt fyrir að hafa gildar heilsufarslegar ástæður fyrir notkun þess. Leikarinn var ekki viðstaddur dómsuppkvaðningu en hann hafði fyrr viðurkennt sekt sína. Dómarinn, Paul Cloran, sagðist fullviss um að efnin væru til einkanotkunar fyrir hinn sextuga Stallone. Hann sektaði leikarann um 150 000 krónur fyrir vörslu efnanna og dæmdi hann til að greiða rúmlega 500 000 krónur í málskostnað. Hámarks refsing fyrir brotið er tæplega sex milljóna sekt og fimm ára fangelsisvist. Stallone var ákærður eftir að tollverðir sem leituðu í farangri hans fundu 48 ampúlur af Jintropini, sem er bannað í Ástralíu. Þremur dögum síðar varð hann uppvís að því að henda fjórum ampúlum af testósteróni út um glugga þegar tollverðir hugðust leita í hótelherbergi hans í Sidney. Í bréfi til réttarins baðst Rambó stjarnan afsökunar á mistökum sínum. Hann sagðist hafa tekið hormónin árum saman vegna krankleika sem hann kaus að tjá sig ekki nánar um. Í samtali við tollverði við handtökuna sagðist Stallone vera með svo mikið magn vegna þess að hann væri á leið til Tælands og Búrma þar sem hann myndi dveljast í þrjá mánuði við tökur á nýjustu Rambó myndinni. ,, Þegar maður eldist minnkar virkni í heiladinglinum. Þetta efni frískar líkamann við og lætur manni líða yngri." sagði Stallone við tollverðina. ,,Það er ekkert grín að leika Rambó, heldurðu að ég fái þetta stöff í Búrma?"
Mest lesið „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Lífið Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Lífið Málverk af Danakonungi vekur athygli Menning Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Lífið „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ Lífið Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Lífið Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu Bíó og sjónvarp „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Lífið samstarf Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Lífið „Það voru margir með tár á hvarmi“ Lífið Fleiri fréttir „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Sjá meira