Lífið

Stallone sektaður fyrir innflutning stera

Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir skrifar
Maður verður ekki svona af lýsi eingöngu.
Maður verður ekki svona af lýsi eingöngu.

Dómstóll í Ástralíu sektaði Sylvester Stallone í morgun um tæplega sjö hundruð þúsund krónur yrir að hafa undir höndum vaxtarhormónið Jintropin.

Vaxtarhormónið og karlhormónið testósterón fundust í farangri Stallones við komuna til Ástralíu í febrúar. Leikarinn var í kynningarferð fyrir nýja mynd sína um boxarann Rocky Balboa.

Í dómnum sagði að Stallone hefði ekki getað sýnt fram á að hann hefði lyfseðil fyrir vaxtarhormóninu, þá hafi hann ekki látið tollverði vita af testósteróninu, þrátt fyrir að hafa gildar heilsufarslegar ástæður fyrir notkun þess.

Leikarinn var ekki viðstaddur dómsuppkvaðningu en hann hafði fyrr viðurkennt sekt sína.

Dómarinn, Paul Cloran, sagðist fullviss um að efnin væru til einkanotkunar fyrir hinn sextuga Stallone. Hann sektaði leikarann um 150 000 krónur fyrir vörslu efnanna og dæmdi hann til að greiða rúmlega 500 000 krónur í málskostnað. Hámarks refsing fyrir brotið er tæplega sex milljóna sekt og fimm ára fangelsisvist.

Stallone var ákærður eftir að tollverðir sem leituðu í farangri hans fundu 48 ampúlur af Jintropini, sem er bannað í Ástralíu. Þremur dögum síðar varð hann uppvís að því að henda fjórum ampúlum af testósteróni út um glugga þegar tollverðir hugðust leita í hótelherbergi hans í Sidney.

Í bréfi til réttarins baðst Rambó stjarnan afsökunar á mistökum sínum. Hann sagðist hafa tekið hormónin árum saman vegna krankleika sem hann kaus að tjá sig ekki nánar um.

Í samtali við tollverði við handtökuna sagðist Stallone vera með svo mikið magn vegna þess að hann væri á leið til Tælands og Búrma þar sem hann myndi dveljast í þrjá mánuði við tökur á nýjustu Rambó myndinni.

,, Þegar maður eldist minnkar virkni í heiladinglinum. Þetta efni frískar líkamann við og lætur manni líða yngri." sagði Stallone við tollverðina.

,,Það er ekkert grín að leika Rambó, heldurðu að ég fái þetta stöff í Búrma?"






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.