Lífið

Fyrirgefningin á Uppstigningadag

Guðjón Bergmann heldur fyrirlestur á Grand Hótel Reykjavík á fimmtudagskvöld.
Guðjón Bergmann heldur fyrirlestur á Grand Hótel Reykjavík á fimmtudagskvöld.

Fimmtudaginn 17.maí heldur Guðjón Bergmann tveggja stunda fyrirlestur á Grand Hótel Reykjavík með yfirskriftinni Fyrirgefningin: Heimsins fremsta lækning. Þetta er í fjórða skipti sem fyrirlesturinn er haldinn frá því í nóvember 2006 enda hefur þáttaka verið framúrskarandi góð.

Með því helsta sem verður fjallað um er:

- Munurinn á fyrirgefningu og iðrun.

- Heilsusamlegir ávinningar (andlegir og líkamlegir) þess að fyrirgefa.

- Munurinn á því að fyrirgefa og fyrirgeyma.

- Aðferðir við að fyrirgefa.

Fyrirlesturinn er nefndur í höfuðið á bók eftir Gerald Jampolsky sem Guðjón þýddi af ensku fyrir rúmum sex árum og kom upphaflega út hjá Leiðarljósi ehf. en hefur nú verið endurútgefin af Eddu útgáfu.

Frá því að Guðjón þýddi bókina hefur hann iðulega rætt um fyrirgefninguna á fyrirlestrum sínum og námskeiðum. Umræðan hefur í öllum tilfellum vakið mikinn áhuga viðstaddra og því var ákveðið að setja saman sérstakan tveggja stunda fyrirlestur um þetta efni sem er svo mörgum hugleikið.

Fyrirlesturinn hefst kl.20:00 og stendur í rúma tvo tíma. Aðgangseyrir er 3.000 kr. Hægt er að mæta beint á fyrirlesturinn eða skrá sig á www.gbergmann.is.

Hægt verður að kaupa samnefnda bók, bol með áletrun (Fyrirgefningin er að hætta að óska sér eftir betri fortíð) og fá aðgang að fyrirlestrinum fyrir aðeins 4.500 kr.

Tengdar síður:

www.gbergmann.is

www.gudjonbergmann.blog.is

www.sevenhumanneeds.com






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.