Risessan leitar að pabba sínum 12. maí 2007 13:08
Leit risessunnar að föður heldur áfram í dag en faðir hennar, risinn, hefur gengið berserksgang um borgina. Risessan hóf daginn á því að fara í sturtu áður en hún hélt af stað á nýjan leik. Risessan sem er átta metra há risabrúða hóf leit sína að föður sínum í gær en sá er heldur geðstyggur risi sem brást illa við þegar leiðangursmenn frá Fornleifastofnun Frakklands vöktu hann upp fyrir skömmu af hundrað ára dvala undir Reykjavíkurborg. Hann gekk þá berserksgang um borgina og eyðilagði bíla með hnífapörunum sínum. Risessan fór á fætur í morgun klukkan hálf ellefu og byrjaði daginn á að fara í sturtu. Síðan lagði hún af stað frá Hafnarbakkanum þar sem hún gisti í nótt en hún freistar þess að ná að tæla föður sinn af landi brott. Í þessum töluðu orðum er risessan að nálgast pabba sinn en það gerist líklega á Fríkirkjuvegi og þaðan fara þau feðgin niður á Lækjartorg þar sem þau hvílast. Þau leggja svo af stað frá Lækjartorgi klukkan þrjú, fara upp Hverfisgötu, Snorrabraut og svo niður á Sæbraut þaðan sem leið þeirra liggur að Hafnarbakkanum. Þar verða þau klukkan fimm í dag þar sem Risessan ætlar að reyna að lokka föður sinn með sér á haf út og bjarga þannig borgarbúum frá frekari skemmdum. Risessan og risinn eru hluti af ævintýri götuleikhússins Royal de Luxe sem hingað er komið á Listahátíð í Reykjavík og frönsku menningarkynninguna Pourquoi Pas? Þess má geta að bílastæðum í gönguleið Risessunar og risans verður lokað tímabundið á morgun. Bílar sem lagðir eru þar ólöglega verða fjarlægðir á kostnað eigenda sinna. Gönguleiðina má finna á artfest.is.
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Fleiri fréttir „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Sjá meira