Lífið

Krufning Parisar Hilton

Sigríður Elva Viilhjálmsdóttir skrifar

Paris Hilton er fyrirmynd. Að minnsta kosti fyrirmynd höggmyndar sem listamaðurinn Daniel Edwards mun opinbera í Brooklyn í dag. Verkið, ,,Krufning Paris Hilton" sýnir glamúrgelluna látna, nakta, með glennta fætur og farsíma í hendi. Með þessu vill listamaðurinn vekja athygli á hættum ölvunaraksturs, en hótelerfinginn Hilton var á dögunum dæmd til 45 daga fangelsisvistar fyrir brot á skilorði fyrir að keyra drukkin.

,,Þetta ætti að vekja alla þá sem taka sér Paris Hilton til fyrirmyndar til umhugsunar." sagði Edwards. Listamaðurinn hefur meðal annars gert risavaxna eftirmynd af höfði Fídels Kastró og styttu í raunstærð af Britney Spears, nakinni á bjarnarfeldi að fæða barn.

Paris Hilton segist reiðubúin að taka afleiðingum gjörða sinna. ,,Ég er ekki yfir lögin hafin frekar en hver annar" sagði Hilton. ,,Ég býst ekki við vægari dómi en hver annars sem brýtur skilorð, þó ég voni að ekki verði farið verr með mig en aðra."

Nú stendur yfir undirskriftasöfnun til hvetja Arnold Schwarzenegger ríkisstjóra Kaliforníu til að náða Hilton. Alls hafa 22.147 manns skrifað undir beiðnina, sem hefst á þessum orðum:

,,Paris Whitney Hilton er amerísk stjarna og samkvæmisljón. Hún mun erfa hluta auðæfa Hilton hótelkeðjunnar, ásamt fasteignaauðæfum föður síns, Richard Hilton. Hún veitir ungu fólki um gervöll Bandaríkin og heiminn von. Hún veitir fegurð og spennu inn í hversdagsleg líf okkar"

Beiðnina má lesa í heild sinni hér






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.