Ríkið minnkar skattbyrði hátekjufólks á kostnað láglaunafólks 10. maí 2007 13:51 MYND/365
Tekjuskattur láglaunafólks hefur aukist á síðastliðnum tólf árum um 5 prósent en lækkað um allt 15 prósent á hjá hálaunafólki. Þetta kemur fram í grein Indriða H. Þorlákssonar, hagfræðings. Hann segir aukna skattbyrði láglaunafólks hafa leitt til lækkunar á ráðstöfunartekjum sama hóps um allt að 20 prósent. Í grein sem Indriði birtir á vefsíðu sinni kemur fram að árið 1992 hafi tekjuskattur einstaklinga að meðaltali verið um 17 prósent af heildartekjum. Árið 2005 hafi meðalskatthlutfallið verið komið upp í 22 prósent. Indriði bendir á að hjá hjónum í lægsta tekjufjórðungi hafi skattbyrðin aukist um 10 til 14 prósentustig og hjá hjónum með meðaltekjur um 4,5 til 6 prósentustig. Hjá hjónum með hæstar tekjur hafi hins vegar skattbyrðin lækkað um 2 til 25 prósentustig á sama tímabili. Þannig greiddu hjón með 4 milljónir í árstekjur að meðaltali 5 prósent hærri skatt árið 2005 en hjón með sömu rauntekjur árið 1995. Hjón með 4 til 6 milljónir greiddu svipað hlutfall tekna sinna í skatt og þeir hefðu greitt fyrir 10 árum af sömu rauntekjum. Aðrir með hærri tekjur greiddu árið 2005 lægra hlutfall af rauntekjum í skatt en áður eða allt upp í 15 prósent þegar tekjur eru komnar yfir 30 milljónir króna á ári. Indriði telur ástæðuna vera að skattleysismörk hafi á undanförnum árum ekki hækkað í samræmi við tekjur og verðlag. Þess í stað hafi verið farin sú leið að lækka skatthlutfallið. Að mati Indriða er óhjákvæmileg afleiðing slíkra aðgerða sú að skattbyrðin færist frá þeim sem hafa hærri tekjur til hinna sem eru tekjulægri. Sjá grein Indriða hér.
Mest lesið Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Innlent Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Erlent Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Innlent Fleiri fréttir Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Sjá meira