Lífið

Doherty handtekinn aftur

Doherty og kærastan, Kate Mioss, við verðlaunaafhendingu NME  í byrjun mars 2007.
Doherty og kærastan, Kate Mioss, við verðlaunaafhendingu NME í byrjun mars 2007.
Pete Doherty var handtekinn í Kensington í London á laugardagskvöldið grunaður um að vera með fíkniefni. Lögregla stöðvaði hann á bíl sínum og færði til yfirheyrslu á lögreglustöð. Honum var síðan sleppt með tryggingu, en þarf að mæta aftur á stöðina í júní.

Doherty, sem er 28 ára og söngvari hljómsveitarinnar Babyshambles, hefur ítrekað komið fyrir rétt vegna fíkniefnamála undanfarna sex mánuði. Honum hafði verið skipað að fara í meðferð og dómari í máli hans lét þau orð falla í apríl, að hann hefði verið afar samvinnuþýður í að vinna bug á fíkn sinni í hörð eiturlyf. "Þeir sem standa mér næst hafa sagt stopp. Þau segja að ég þurfi að velja milli þeirra eða eiturlyfjanna," var haft eftir honum þá.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.