Leitin að næstu sjónvarpsstjörnu 20. apríl 2007 10:24
Það hlaut að koma að því. Strákarnir eru snúnir aftur ... fyndnari og frískari en nokkru sinni fyrr. Og markmið þeirra er aðeins eitt: Að leita að næstu sjónvarpsstjörnur Íslands... sjálfum arftökum sínum. Leitin að Strákunum er alíslenskur og ofurraunverulegur skemmtiþáttur sem verður á dagskrá á föstudagskvöldum í vor og sumar á Stöð 2. Þar verða Strákarnir í essinu sínu, sýna allar sínar bestu hliðar og sanna þar með í eitt skipti fyrir öll að þeir eru bestu, fyndnustu og frábærustu sjónvarpsmenn í öllum heiminum og þótt víðar væri leitað. Eins og nafnið gefur til kynna gengur Leitin að Strákunum út á að finna sjónvarpsstjörnur framtíðarinnar ... mögulega arftaka Strákanna. Og það verða hinir einu sönnu Strákar sem koma til með að stjórna leitinni og velja þá efnilegustu úr stórum hópi umsækjenda. Í fyrsti þættinum, sem er á dagskrá í kvöld á Stöð 2, verður sýnt frá áheyrnarprufunum skrautlegu, sem fóru fram á Akureyri og í Reykjavík í mars. Þar fengu menn og konur 3 mínútur til að sannfæra Strákana um að þau ættu erindi í þáttinn og úr þessum hópi völdu Strákarnir þau 10 sem stóðu uppúr. Hin 10 útvöldu taka svo þátt í sjálfri keppninni sem hefst formlega frá og með öðrum þættin og gengur þannig fyrir sig að Strákarnir leggja fyrir þau hinar ótrúlegustu þrautir og áskoranir, sem allir ættu að þekkja úr gömlu góðu Stráka- og 70 mínútna þáttunum. Strákarnir þurfa síðan að dæma um það hverjir standa sig best og hverjir falla úr keppni. Keppendurnir týna tölunni einn af öðrum, einn í hverjum þætti, þar til þrír standa eftir sem sigurvegarar í Leitinni og fá að launum sinn eigin sjónvarpsþátt á Sirkus. Alls verða þættirnir 9 talsins og á dagskrá á föstudögum klukkan 20.30.
Mest lesið Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Lífið „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Lífið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Lífið Kveðjustund í ráðhúsinu Lífið Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Lífið Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Lífið Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum Lífið Fleiri fréttir „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Sjá meira