Innlent

Vildi ekki kyssa lögregluna án fölsku tannanna

Lögreglan á Akranesi þurfti í liðinni viku að aðstoða ölvaðan mann sem dottið hafði í götuna. Eftir sem fram kemur í dagbók hennar var maðurinn heldur illa til reika og hafði hlotið skurð á enni.

Fóru lögreglumenn með hann á sjúkrahúsið þar sem gert var að sárum hans. Að því loknu var manninum ekið heim og var hann þakklátur. Kvaðst hann vilja þakka lögreglumönnum með kossi síðar, þegar hann væri kominn með nýjar tennur en báðir fölsku tanngarðarnir höfðu brotnað við fallið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×