Sjóntæki til hjálpar börnum á leið upp úr kössunum 14. mars 2007 18:30
Foreldrar drengs með alvarlegan augnsjúkdóm vissu ekki að þau gætu leitað eftir aðstoð fyrir hann hjá sjálfstætt starfandi augnlæknum. En tæki sem Sjónstöð Íslands fékk að gjöf fyrir ári til að útbúa sérstakar linsur vegna sjúkdósmins, hafa verið í kössum frá því þau komu til landsins fyrir um sjö mánuðum. Við sögðum frá því í fréttum okkar um helgina að tæki sem VÍS tryggingar gáfu Sjónstöð Íslands fyrir ári, hafa verið ónotuð í kössum frá því þau komu til landsins fyrir um sjö mánuðum. En tækin er notuð til gerðar snertilinsa fyrir börn sem fjarlægja hefur þurft augasteina úr, þannig að þau fái sjón. Stöð 2 hefur fylgst með Jóni Þorbergi Óttarssyni frá því hann var þriggja mánaða gamall og fór í slíka aðgerð. En hann hefur allar götur síðan notað þykk og mikil gleraugu, sem hamla honum töluvert í leik og starfi. Hann og foreldrar hans hafa því beðið spennt eftir uppsetningu tækjanna. Til stóð að sameina Sjónstöð Íslands og Heyrnar- og talmeinastöðina, en um það bil sem tækin komu til landsins, var horfið frá því og byrjað að huga að stækkun núverandi húsnæðis Sjónstöðvarinnar. Forstöðumaður hennar segir að því hafi verið beðið með uppsetningu tækjanna. "Í mínum huga hljómar þetta svolítið eins og fyrirsláttur. Ég veit til þess að tækið þarf ekki nema tíu til fimmtán fermetra uppsett til að gagnast og ég veit það líka að Sjónstöðin er með um 430 fermetra húsnæti til ráðstöfunar," segir Hrönn Ottósdóttir sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu. Hrönn segir að í sjálfu sér sé bagalegt að ekki sé farið að nota tækið. "Ég skora á Sjónstöðina að koma tækinu sem fyrst í notkun," segir Hrönn. Og nú er útlit fyrir að biðin sé loks á enda og það styttist í að tækið verði tekið upp úr kössunum. Guðmundur Viggósson forstöðumaður Sjónstöðvarinnar segir að tækið taki eitt herbergi sem ekki sé á lausu eins og er en auðvitað þurfi að forgangsraða hlutunum. Ómögulegt er hins vegar að geta sér tilo um hvenær stjórnvöld komast að niðurstöðu um sameiningu stofnana. Guðmundur segir að ekki sé hægt að draga þetta lengur. "Nei, eiginlega finnst manni það ekki hægt og maður dauðskammast sín gagnvart gefendunum og gagnvart öllu því góða fólki sem hefur barist fyrir þessu, sem er vissulega til bóta fyrir ákveðna einstaklinga," segir Guðmundur. En hann segir jafnframt að hægt hafi verið að sinna þessari linsugerð hjá sjálfstætt starfandi augnlæknum. "Auðvitað hefur verið hægt að sinna svona kontaktlinsumátun úti í bæ, hjá sjálfstætt starfandi augnlæknum sem hafa sérhæft sig í því," segir Guðmundur. Þetta kemur Önnu Kristínu Hauksdóttur, móður Jóns Þorbergs mjög á óvart. "Við höfum ekki heyrt þetta áður og ég er reyndar að heyra þetta í fyrsta skipti núna í dag. Þannig að ég er dálítið hissa," segir Anna Kristín. Hún hefði gjarnan viljað vita þetta fyrr, þar sem töluvert vesen hafi fylgt örum gleraugnaskiptum.
Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Innlent Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Innlent Fleiri fréttir Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Þorgerður beygði af í Bítinu Segir Katrínu sparka í konuna sína Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“ Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Sjá meira