Holtavörðuheiði ekki opnuð fyrr en í fyrramálið 18. mars 2007 18:30
Björgunarsveitir hafa í dag hjálpað fólki sem lenti í vandræðum á bæði Hellisheiði og Holtavörðuheiði vegna hvassviðris og ofankomu. Þá hafa snjóflóð fallið á veginn milli Súðavíkur og Ísafjarðar í dag.Illviðrið færir sig nú yfir á austurhluta landsins og ræður Slysavarnafélagið Landsbjörg fólki frá því að leggjast í ferðalög á illa búnum bílum. Lægðadrag hefur gengið yfir landið frá því í gærkvöld með töluverðu hvassviðri og ofankomu á sumum stöðum. Annars staðar hefur verið mikill skafrenningur sem hefur gert vegfarendum á þjóðvegum landsins erfitt fyrir. Því hafa björgunarsveitir í nágrenni Holtavörðuheiðar og Hellisheiðar haft nokkuð að gera í dag. Vandræðin hófust strax í morgun þegar Hellisheiðinni var lokað vegna blindu af völdum skafrennings og þurftu lögregla og Hjálparsveit skáta úr Hveragerði að koma ökumönnum sem fastir voru á heiðinni til aðstoðar. Sama var uppi á teningnum eftir hádegi og er vegurinn enn lokaður en fólki bent á að fara um Þrengslin. Holtavörðuheiðin hefur verið lokuð frá því um hádegisbil og þurftu björgunarsveitir beggja vegna heiðar að aðstoða um tug bíla niður af heiðinni. Ekki verður reynt að moka Holtavörðuheiðina fyrr en í fyrramálið og sömu sögu er að segja af Bröttubrekku en fólki er bent á að fara Laxárdalsheiði og Heydal. Þrjú snjóflóð hafa fallið í dag á veginn milli Súðavíkur og Ísafjarðar og liggur ekki fyrir hvenær vegurinn verður ruddur. Vegagerðin segir að slæmt veður sé einnig á Norðurlandi, Norðausturlandi og Austurlandi. Víkurskarð er ófært og ekkert ferðaveður er á Mýtvatnsheiði og heldur ekki milli Djúpavogs og Hafnar í Hornafirði. Þá er ungfært og stórhríð er yfir Fjarðarheiði. Beinir Slysavarnafélagið Landsbjörg því til fólks að leggja ekki í ferðalög, og þá sérstaklega ekki á heiðar, á illa útbúnum smábílum. Búast má við að veðrið gangi yfir austurhluta landsins í kvöld og nótt og verði gengið niður á vestanverðu landinu í fyrramálið.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Fleiri fréttir Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Sjá meira