Búið að opna Hellisheiðina en ekkert ferðaveður 18. mars 2007 12:02
Hellisheiðinni var lokað í morgun vegna blindhríðar og var lögregla og hjálparsveit kölluð út til að aðstoða ökumenn. Á Vestfjörðum og Norðurlandi er hins vegar víða búið að opna vegi eftir snjóflóð eða snjóflóðahættu. Slæmt veður hefur verið víða á vesturhluta landsins frá því um miðjan dag í gær og í morgun var gripið til þess ráðs að loka Hellisheiðinni eftir að blindbylur skalla á í Kömbunum og fólk lenti í vandræðum þar. Fór lögreglan á Selfossi til aðstoðar ökumönnum og þá var Hjálparsveit skáta í Hveragerði einnig kölluð út vegna illvirðisins. Ekki liggur fyrir hversu margir þurftu á aðstoð að halda en nú laust fyrir fréttir var vegurinn opnaður aftur. Lögregla segir þó lítið ferðaveður á heiðinni og biður vegfarendur að fylgjast með fréttum af færð. Þá féllu snjóflóð bæði á Vestfjörðum og Norðurlandi í gær og höfðu áhrif á umferð. Um kvöldmatarleytið í gær féll snjóflóð á veginn milli Súðavíkur og Ísafjarðar og þegar snjóruðningstæki kom á vettvang til að moka snjónum burt féll annað flóð og hafnaði á tækinu. Ökumanninn sakaði ekki en vegurinn var ekki mokaður fyrr en í morgun. Þá var vegunum um Ísafjarðardjúp og Óshlíð lokað í gær vegna snjóflóðahættu og þá lokaðist Hnífsdalsvegur eftir að um 70 metra breitt snjóflóð féll á hann í nótt. Allir þessir vegir hafa verið opnaðir í morgun. Hins vegar er enn hættuástand í hesthúsahverfinu í Hnífsdal vegna snjóflóðahættu. Þá er búið að opna Siglufjarðarveg en hann lokaðist í gær eftir að snjóflóð féll í Mánárskriðum. Víða er þó skafrenningur eða él á Norðulandi. Þá er verið að moka Bröttubrekku en slæmt ferðaveður er á Holtavörðuheiði. Enn fremur er mjög hvasst og hált á Kjalarnesi en blindhríð sem þar var í morgun er gengin yfir.
Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Erlent Inga segir já Innlent „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Innlent Fleiri fréttir Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Þorgerður beygði af í Bítinu Segir Katrínu sparka í konuna sína Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“ Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ „Þetta er ekki alveg óvænt“ Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti ESB geti hvorki tekið yfir orkuauðlindir né skipað Íslandi að leggja sæstreng Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Samræmdar reglur um símafrí settar EES án Íslands „ekki klúbbur sem maður vill vera í“ Nei-sinnar fleiri í fyrsta sinn Kvöldfréttir: Bjarni Ben og Halla Gunnars í beinni og fjöldafundur Sjá meira