Innlent

Heitir á stjórnarandstöðu um samstarf í auðlindamáli

MYND/GVA

Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins, hét á stjórnarandstöðuna um samstarf í auðlindamálinu og sagði erindi Framsóknarflokksins aldrei hafa verið meira en nú í eldhúsdagsumræðum á Alþingi í kvöld.

Hann sakaði stjórnandstöðuna um neikvæð viðhorf og vanmat á nútímalegum aðstæðum Íslendinga og um úrelt afturhaldssjónarmið. Sagði hann tekjuskiptingu jafnari hér en í flestum öðrum Evrópuríkjum og benti á að samið hefði verið um aukinn stuðning við öryrkja og aldraða. Mikið átak hefði verið unnið í þeim málum.

Þá hefði heimamönnum á landsbyggðinn verið falið að forsjá með vaxtasamningum en þó bæri að taka betur á atvinnumálum á landsbyggðinni, sérstaklega á Vestjörðum.

Benti hann á góð verk í umhverfismálum eins og stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs. Hann sagði enn fremur að brátt lyki mestu framkvæmdum Íslandssögunnar í tengslum við Kárahnjúkavirkjun og þá færu þær að færa þjóðinni arð og betri lífskjör. Margt hefði verið sagt um framkvæmdirnar að lítilli hófsemi en það myndi hverfa þegar menn sæju afrakstur þeirra.

Þá gerði hann þjóðarsátt um verndun og nýtingu auðlinda að umtalsefni og sagði að auðlindaákvæðið sem færi inni stjórnarskrá tryggði að náttúruauðlindir landsins yrðu um aldur og ævi þjóðareign. Stjórnarandstæðingar hefðu óskað eftir einföldu ákvæði um þetta og því héti hann á stjórnarandstöðuna um samstarf í málinu.

Þá sagði hann framsóknarmenn áfram vilja stefna að þroskuðu þekkingarsamfélagi fyrir allt landið og að Íslendingar hefðu áfram lífskjör og menntun sem væri með því besta í heimi. Andstæðingar hefðu reynt að gera lítið úr þessari stefnu flokksins en hefði ekki orðið kápan úr því klæðinu.

Mikilvægt væri að glata ekki því sem áunnist hefði á síðustu árum og því bæri að varast fagurgala stjórnarandstöðunnar. Erindi Framsóknarflokksins hefði aldrei verið eins brýnt og nú og Íslendingar þyrftu að njóta ábyrgðar og festu sem framsóknarmenn hefðu fram að bjóða.

Þá Þyrfti að tryggja sérstaklega langvarandi jafnvægi og varanlegan stöðugleika í efnahagsmálum. Hét Jón á alla landsmenn að hugsa sig vel um fyrir kosningarnar og velja þá sem traustir væru. Lífskjör langflestra landsmanna hefðu aldrei verið betri og útrás aldrei meiri. Atvinnuöryggi væri mun meira en í nágrannalöndum og kaupmáttaraukning mikil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×