Allt á suðupunkti 22. febrúar 2007 12:00
Fimmta úrslitakvöldið í X-Factor fer fram í beinni útsendingu frá Vetrargarðinum í Smáralind á morgun föstudag. Átta atriði eru eftir og óhætt er að fullyrða að allt sé á suðupunkti eftir tíðindi síðustu viku. Þá varð Einar Bárðarson fyrir mikilli blóðtöku þegar Siggi kafteinn, eins og norðlenski söngvarinn Sigurður Ingimarsson er jafnan kallaður, féll úr keppni, flestum að óvörum. Engum kom það þó meira að óvörum en Einari, sem margsinnis hefur lýst yfir að hann telji Sigga nú þegar vera búinn skipa sér í röð með bestu söngvurum landsins. En þegar Siggi hafnaði í öðru af tveimur neðstu sætunum í símakosningunni varð framtíð hans í keppninni skyndilega ógnað. Og svo fór eins og Einar hafði óttast, Ellý valdi að senda hann frekar heim, heldur en Gís-hóp Palla. Einar vandaði meðdómurum sínum ekki kveðjuna, bæði í þættinum og í dómarablogginu sem er að finna á X-Factorsíðinni og á minnsirkus.is. Þar gagnrýndi hann harðlega ákvörðun Ellýjar og hefur því meira að segja gert skóna að það hafi verið samantekið ráð hjá þeim Ellý og Palla að senda einhvern af keppendum hans heim - til að gera jafnara í "liðum" - og því hafi brotthvarf Sigga ekkert haft með hæfileika hans að gera, heldur miklu frekar innbyrðis samkeppni milli dómaranna. Þessu eiga Palli og Ellý eflaust eftir að svara fullum hálsi í þættinum annað kvöld, þar sem búast má við föstum skotum í allar áttir. Annað sem bar til tíðinda í vikunni var að Inga Sæland varð fyrir alvarlegu slysi á laugardaginn var þegar hún missti framan af fingri, þegar tökur fyrir þáttinn stóðu yfir. Inga er öll að braggast og mun að sjálfsögðu mæta til leiks á morgun, staðráðin í að halda áfram þátttöku allt til enda, þrátt fyrir skakkaföllin. Eitt atriði fellur úr keppni í hverjum þætti, allt þar til yfir líkur að eitt stendur eftir sem sigurvegari keppninnar; sá flytjandi sem talinn hefur x-faktorinn eftirsótta. Það sem keppendur þurfa að gera er að syngja sig inn í hjörtu þjóðarinnar, því það er á valdi sjónvarpsáhorfenda að velja þá sem best stóðu sig, með því að greiða þeim atkvæði í símakosningu. Þeir tveir keppendur sem fæst atkvæði fá í símakosningunni þurfa svo að syngja aftur í þættinum til að bjarga lífi sínu og sannfæra dómarana um að þeir eigi skilið að halda áfram. Það kemur því í hlut dómaranna að skera úr um að endanum hver fer heim hverju sinni.
Mest lesið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Lífið „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Lífið Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið Lífið Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Stendur fyrir auðmannsgleði í Elliðaárdal Menning Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Lífið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ára í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Lífið Fleiri fréttir Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ára í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Sjá meira