Stjórnvöld án markmiða í loftlagsmálum 6. febrúar 2007 18:30
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir íslensk stjórnvöld ekki hafa sett sér markmið um takmörkun á losun gróðurhúsalofttegunda eins og flestar þjóðir Evrópu hafi gert. Forsætisráðherra segir að Íslendingar muni ekki skerast úr leik þegar reynt verði að ná samstöðu þjóða um þetta mál. Formaður Samfylkingarinnar kallaði eftir skoðunum forsætisráðherra varðandi markmið um takmörkun á losun gróðurhúsalofttegunda á Alþingi í gær. Norðurlönd og Evrópuríki ætluðu að draga úr losun um 30 prósent fyrir 2020 og Bretar um 60 prósent fyrir 2050.En tvö þingmál Samfylkingarinnar um þessi mál sem lögð voru fram í haust hafa ekki fengist rædd á Alþingi. Formaðurinn spurði hvert yrði samningsumboð íslensku sendinefndarinnar á loftlagsráðstefnu sameinuðu þjóðanna á Balí í haust. "Mun það verða samningsmarkmið okkar að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um 30 prósent fyrir 2020 eða mun áfram verða gert út á okkar sérstöðu og reynt að ná í viðbótarkvóta eins og jafnvel hefur mátt skilja á hæstvirtum umhverfisráðherra í þeirri fjölmiðlaumræðu sem hér hefur farið fram," spurði Ingibjörg Sólrún. Geir H Haarde forsætisráðherra sagði horfur í loftlagsmálum grafalvarlegar. Íslendingar notuðu hins vegar mest endurnýjanlega orku og gætu flutt þekkingu og tækni í þeim efnum til annarra þjóða. "Það er rangt að gera því skóna að eithvað af því sem hér er að gerast sé með einhverjum hætti Íslendingum að kenna. Þvert á móti höfum við lagt okkar að mörkum til að draga úr mengun og auka notkun endurnýjanlegra orkugjafa," sagði forsætisráðherra. Ingibjörg Sólrún sagði að það væru s.s. Bush (Bandaríkjaforseti) og Geir H Haarde sem stæðu eftir eins og sandstólpar í þessu máli og gætu ekki tekið afstöðu til málsins á meðan allir aðrir gætu gert það. "Íslenska ríkisstjórnin og vonandi við öll, Alþingi allt, mun koma fram af fyllstu ábyrgð í þessu máli. Okkar sendinefnd á þeirri ráðstefnu sem þingmaðurinn gat um mun koma þangað upprrétt," sagði Geir H Haarde forsætisráðherra.
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Orbán hættir á þingi Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Fleiri fréttir Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sjá meira