Innlent

Í hár saman út af tölvuleikjum

MYND/Guðmundur

Óhófleg tölvunotkun hefur valdið vandræðum á heimilum í höfuðborginni. Á vef lögreglunnar er sagt frá heimsókn lögreglumanna á höfuðborgarsvæðinu að ónefndu húsi í gær þar sem fjölskyldan var komin í hár saman vegna tölvunotkunar unglingspilta á heimilinu.

Piltarnir höfðu farið yfir strikið að mati foreldra þeirra en þeir sinntu fáu öðru en að spila tölvuleiki. Þegar móður þeirra fannst nóg komið og hugðist taka á málinu brugðust þeir illa við og þurfti að kalla til lögreglu. Lögreglan segir þetta ekki einsdæmi en í vetur hefur hún sinnt nokkrum slíkum útköllum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×