Innlent

Sælueyjan frumsýnd í Þjóðleikhúsinu í kvöld

María Ellingsen leikstýrir Sælueyjunni.
María Ellingsen leikstýrir Sælueyjunni. MYND/Stefán
Sælueyjan verður frumsýnd í Þjóðleikhúsinu í kvöld. Sælueyjan er verk sænska leikskáldsins Jacobs Hirdwall og fjallar um stórar spurningar sem varða okkur öll, samkvæmt upplýsingum frá leikhúsinu.

Þar segir frá því að maður finnst á köldum haustmorgni nær dauða en lífi á hálendinu og krefst hann þess að ná tali af forstjóra íslensks erfðatæknifyrirtækis og trúir honum fyrir mikilvægu leyndarmáli. María Ellingsen leikstýrir verkinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×