Innlent

Telja að ensím úr þorski geti nýst gegn fuglaflensu

Jón Bragi Bjarnason með Pensímið sem fyrirtækið Zymetech hefur framleitt.
Jón Bragi Bjarnason með Pensímið sem fyrirtækið Zymetech hefur framleitt. MYND/GVA

Íslenska fyrirtækið Zymetech telur að ein af framleiðsluvörum þess, svokallað Pensím, geti hjálpað til í baráttunni við fuglaflensu. Þetta kemur fram í frétt breska dagblaðsins Times.

Þar segir að vísindamenn við Háskóla Íslands hafi stofnað fyrirtækið árið 1996 en það hafi einbeitt sér að framleiðslu lyfja og snyrtivara úr þorskensímum. Þar á meðal sé Pensím sem reynst hafi vel gegn húðsjúksdómum eins og exemi og psoriasis.

Haft er eftir Jóni Braga Bjarnasyni, prófessor í lífefnafræði og framkvæmdastjóra fyrirtækisins, að tilraunir hafi hins vegar leitt í ljós að pensím eyði 99 prósentum af H5N1-veirufrumum innan fimm mínútna. Niðurstöðurnar lofi mjög góðu sem þýði að hugsanlega verði hægt að nota ensímið til að þróa ný lyf gegn fuglaflensu.

Samkvæmt Times leitar Zymetech nú fjármagns til að halda áfram tilraunum með Pensímið. Þarf fyrirtækið allt að tvo milljarða króna til þess og nýtur fyrirtækið aðstoðar Kaupþings og breska fyrirtækisins Ouri Clark við fjáröflunina. Ef niðurstöður verða áfram jákvæðar verður hugsanlega leitað eftir samstarfi við stórt lyfjafyrirtæki við frekari tilraunir og markaðsetningu lyfsins en það verður líklega ekki fyrr en eftir nokkur ár.

Fram kemur að Jón Bragi hafi í nærri þrjá áratugi rannsakað ensím í fiskum en hann varð fyrst var við áhrif þeirra þegar hann vann sem sjómaður í hlutastarfi með námi á áttunda áratugnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×