Snorri Sturluson með stirt netsamband og lélegt sjónvarp 16. janúar 2007 12:47
Reykholt í Borgarfirði og þar með Snorrastofa búa við hægfara, stirt og brothætt net-samband um svokallað Emax eða eldra kerfi Símans og sjónvarssendingum um örbylgju eða þráð er útilokað að ná þar á bæ, að því er fram kemur í bréfi, sem Bergur Þorgeirsson, fostöðumaður Snorrastofu og Sr. Geir Waage, sóknarprestur í Reykholti hafa skrifað og birt er í Skessuhorni. Þar skora þeir, og þriðji bréfritari, Óskar Guðmundsson, íbúi og rithöfundur í Reykholti á þingmenn kjördæmisins að taka á málinu. Þeir segja ríkisstjórn lengi hafa lofað jafnræði á þessu sviði, en fyrirtæki stofnanir og heimili á svæðinu sé orðin langþreytt á því að bíða eftir efndum stjórnvalda. "Við rekstur menningarstofnana eins og Snorrastofu í Reykholti, sem og hótelsins þar og ferðaþjónustu á staðnum, er afar mikilvægt að fjarskipti séu í sæmilegu lagi, þannig að hægt sé að hafa greið og góð netsamskipti við stofnanir og einstaklinga. Nútíma atvinnustarfsemi byggist á sívaxandi hátt einmitt á slíkum samskiptum. Reyndar á hið sama við um rekstur nútíma heimila; það þykja vera sjálfsögð réttindi að hafa aðgang að sjónvarpsstöðvum og ADSL tölvu-tengingum, " segir í bréfi þremenningana. Eitt af markmiðum Snorrastofu er að gera Reykholt að miðstöð kynningar á íslenskum bókmenntum og miðaldasagnfræði. Í því felst miðlun menningararfsins á víðum grundvelli og er stefnt að stofnun minjagarðs í Reykholti þar sem hugað verður að miðlun fornminja, sögu og menningar svæðisins í heild, að því er fram kemur á vef Snorrastofu. Í bréfinu í Skessuhorni segir ennfremur að ástandið sé þeim mun dapurlegra sem flestar tæknilegar forsendur séu fyrir hendi til að kippa þessu í liðinn. Árið 2001 hafi verið lagður ljósleiðari hingað um hlaðið sem legið hafi ónotaður síðan. "Þessu mætti líkja við að lögð hafi verið tvöföld hraðbraut við hlið troðninganna, en það væri bara bannað að nota hana," segir í bréfinu "Það er okkur óskiljanlegt að lagt hafi verið í þessa fjárfestingu ef ekki ætti að nýta hana til neins." Í Fjarskiptaáætlun Samgönguráðuneytsins fyrir 2005-2010 er gert ráð fyrir að allir landsmenn sem þess óska hafi aðgang að háhraðatengingu árið 2007 og að stafrænt gagnvirkt sjónvarp nái til 99,9% landsmanna árið 2007.
Mest lesið Allkröpp lægð á leiðinni til landsins Veður Biður Höllu afsökunar á fréttum af meintum lífvörðum Innlent Ældi í rútunni og réðst svo á bílstjórann Innlent Samstöðinni verði mögulega lokað í kvöld: Vilja fá lögbann á boðaðan aðalfund Innlent Tugir missa vinnuna í sumar Innlent Snurða hljóp á þráðinn í nótt Innlent Fötlun þýði ekki að börn njóti þess minna að róla og leika sér Innlent Hefur í hótunum við New York vegna „kommúnistans“ Mamdani Erlent Bjórpása í Víkinni og lögreglan í heimsókn í Garðabæ Innlent Borgin fékk frest til að svara Umboðsmanni um fundargerðarbreytingar Innlent Fleiri fréttir Sviptur prófinu eftir að hafa ekið á 185 Ældi í rútunni og réðst svo á bílstjórann Sá sem réðst á Ingunni áfrýjar til hæstaréttar Bein útsending: Rektorsskipti í Háskóla Íslands Snurða hljóp á þráðinn í nótt Samstöðinni verði mögulega lokað í kvöld: Vilja fá lögbann á boðaðan aðalfund Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði Reynt að ná saman um þinglok og hart deilt um Vorstjörnuna Máttu ekki eyða gögnum fyrr en málum væri lokið á öllum dómstigum Bjórpása í Víkinni og lögreglan í heimsókn í Garðabæ Skoða ekki hvort maður hafi mátt binda barn niður og kitla Biður Höllu afsökunar á fréttum af meintum lífvörðum Svörin líklega að finna á Íslandi: Vonlítill um að Jón Þröstur sé á lífi Skjálfti upp á þrjá í Kötlu Fundar með þingflokksformönnum Fötlun þýði ekki að börn njóti þess minna að róla og leika sér Borgin fékk frest til að svara Umboðsmanni um fundargerðarbreytingar Ekkert samkomulag í höfn enn um þinglok Hringsund um Ísland skapi verðmæta þekkingu Óákveðin hvort hún fari aftur fram fyrir Sósíalista: „Mér finnst þetta bara orðið bull“ Tugir missa vinnuna í sumar Segir ráðherra sjálfum í lófa lagið að breyta leikreglum svo ágóðinn rati vestur Segir gömlu samræmdu prófin ekki hafa mælt það sem þurfti Múmínlundurinn verður Ævintýraskógur á meðan leyst er úr höfundarrétti Störf á landsbyggðinni, skortur á sérfræðiþekkingu kennara og óperugala Sektaður fyrir að vera á 101 kílómetra hraða í 101 Rektorar allra íslenskra háskóla lýsa yfir miklum áhyggjum Ekki gagnlegt að stilla fyrirtækjum upp gegn starfsfólki Krefst aðkomu Vinstri grænna að endurmótun varnarmálastefnu Skýrslutökum írsku lögreglunnar lokið Sjá meira