Innlent

Vill skoða alvarlega að taka við skjólstæðingum Byrgisins

Forstöðumaður Samhjálpar kveðst reiðubúinn til að skoða það alvarlega að taka við skjólstæðingum Byrgisins en til að svo geti orðið verði ríkið að leggja til bæði fjármuni og aðstöðu.

Í tengslum við endurskoðun á fjárstuðningi við Byrgið greindi Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra frá því í gær að rætt hafi verið við velferðarsvið Reykjavíkurborgar og Samhjálp um úrræði fyrir skjólstæðinga Byrgisins. Samhjálp hefur þegar fallist á að rýma til á meðferðarheimili Samhjálpar að Hlaðgerðarkoti í Mosfellsdal fyrir þá sex sem voru á heimili Byrgisins að Efri-Brú þegar því var lokað.

Að sögn Heiðars Guðnasonar, forstöðumanns Samhjálpar, hefur engin ákvörðun verið tekin um aðra skjólstæðinga Byrgisins en eindreginn vilji sé af hans hálfu til að koma að því að finna fyrir þá úrræði. Í dag anni Hlaðgerðarkot hins vegar ekki meiri eftirspurn því nú þegar verði að vísa frá 70-75 prósentum þeirra sem þangað leita. Því er ljóst að ekki nægi að stjórnvöld leggi fé til með fólkinu heldur verður meira að koma til.

Spurður hvort Samhjálp geti hugsað sér nýta húsakynnin að Efri-Brú segir Heiðar það vel koma til greina en líklega verði þó að gera einhverjar breytingar á þeim áður. Samhjálp hefur veitt hefðbundna áfengismeðferð um langt árabil. Samtökin eru sjálfstæð og óháð en stjórn þeirra er sú sama og Hvítasunnukirkjunnar Fíladelfíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×