Innlent

Pattstaða í síldarviðræðum

Illa gengur að ná samkomulagi um skiptingu kvótans úr norsk-íslenska síldarstofninum á fjölþjóðlegum samningafundi um síldina í Osló. Framkvæmdastjóri LÍÚ segir fiskveiðiþjóðum ekki sæmandi að veiða stjórnlaust úr stofninum.

Engin niðurstaða náðist um skip í gær og var viðræðum framhaldið í morgun. Friðrik Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, sagði nú rétt fyri hádegi að ómögulegt væri að spá fyrir um málalok eða hvort nokkurt samkomulag næðist yfir leitt.

Norðmenn sögðu samningnum einhliða upp í hitteðfyrra og krefjast aukinnar hlutdeildar í kvótanum, einkum á kostnað Íslendinga, en aðrir sem hlut eiga að máli eru Færeyingar, Rússar og Evrópusambandið.

Eins og stendur eru veiðar úr stofninum stjórnlausar og langt umfram ráðleggingar fiskifræðinga um skynsamlega nýtingu, sem Friðrik segir ekki sæmandi fiskveiðiþjóðum sem vilji kenna sig við ábyrga fiskveiðistefnu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×