Umferðaröryggi og samfélagssjónarmið réðu ákvörðun um Vestfjarðaveg 6. janúar 2007 18:52
Flaggað var á Vestfjörðum í dag eftir að umhverfisráðherra samþykkti nýtt stæði Vestfjarðavegar um Þorskafjörð, Djúpafjörð og Gufufjörð. Jónína Bjartmarz segir að sjónarmið umferðaröryggis og samfélags hafi valdið því að hún ákvað að ganga gegn vilja landeigenda og náttúruverndarsamtaka og leyfa vegagerðina umdeildu.Þessi niðurstaða þýðir að þjóðvegurinn verður lagður í gegnum mesta birkiskóg Vestfjarða í utanverðum Þorskafirði en verndun skógarins var helsta ástæða þess að Skipulagsstofnun og náttúruverndarsamtök lögðust gegn þessu vegarstæði. Vegagerðin, sveitarfélög á sunnanverðum Vestfjörðum og sýslumaður Barðarstrandarsýslu kærðu hins vegar úrskurð Skipulagsstofnunar með þeim rökum að vegna umferðaröryggis og vetrarfærðar yrði að leggja veginn yfir mynni Djúpafjarðar og Gufufjarðar til að losna við tvo varasama vegarkafla um Ódrjúgsháls og Hjallaháls. Ráðherra féllst á þeirra sjónarmið en hún segir hálsana beinlínis hættulega. Eftir að fréttir bárust í morgun af úrskurði ráðherra ákvað bæjarstjóri Vesturbyggðar að flaggað skyldi á opinberum byggingum sveitarfélagsins, þar á meðal á Patreksfirði og Bíldudal, og lét þau boð út ganga að íbúar sýndu ánægju sína með sama hætti. Ragnar Jörundsson bæjarstjóri segir að þessi ákvörðun hafi gríðarlega þýðingu, bæði til að stytta leiðina og til að auka öryggi. Athygli vekur hve lengi það hefur dregist hjá ráðherra að útkljá deiluna en lögum samkvæmt átti að úrskurða síðastliðið vor. Jónína Bjartmarz ber fyrir sig viðamikla gagnaöflun en meðal annars gekk hún sjálf um skóginn.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Fleiri fréttir Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Sjá meira