Milljón króna kennderí 4. janúar 2007 18:30
Ætla má að kostnaður við leit að manni í Hafnarfirði, sem skilaði sér ekki heim eftir að hafa farið út að viðra hundana sína, sé ekki undir einni milljón króna. Maðurinn fannst ölvaður í heimahúsi eftir um fimm klukkustunda leit. Maðurinn sem er rúmlega fertugur, fór akandi heiman frá sér í Hafnarfirði í gærkvöldi til að viðra hunda. Um hálf tólf leytið var hann í símasambandi, sagðist vera við Hvaleyrarvatn og á heimleið. Þegar hann skilaði sér ekki í nótt var hafin leit að honum undir morgun. Um eitt hundrað björgunarsveitarmenn frá sjö björgunarsveitum tóku þátt í leitinni auk spor- og leitarhunda og áhöfn á þyrlu Landhelgisgæslunnar var byrjuð leit, þegar maðurinn fannst. Það voru björgunarsveitarmenn sem höfðu upp á bíl mannsins fyrir utan hús í Hafnarfirði og fannst hann þar inni í góðu yfirlæti. Ekkert amaði að manninum. Lögreglan segir hann ekki hafa gefið neina ástæðu fyrir hvarfi sínu, enda var hann þá orðinn við skál. Björgunarsveitarfólk vinnur störf sín í sjálfboðavinnu, en miðað við temmilegt tímakaup hundrað manns auk útkallskostnaðar Landhelgisgæslunnar, þá hleypur kostnaðurinn af þessu kennderí mannsins einhvers staðar nálægt milljóninni eða rúmlega það. Þyrlan tók þátt í leit í tvær klukkustundir en kostnaður á klukkustund á henni hleypur á 170 til allt að 300 þúsund krónum.
Mest lesið Játaði meira og meira eftir því sem á leið Innlent Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin Innlent Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Erlent „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Innlent Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Innlent Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Innlent „Það átti að taka mig í karphúsið“ Innlent Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Erlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Selenskí undir miklum þrýstingi Innlent Fleiri fréttir Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík „Það átti að taka mig í karphúsið“ Selenskí undir miklum þrýstingi Tímamótaviðræður hafnar og ögurstund hjá Samfylkingunni Eldur í sendibíl á Miklubraut Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Samfylkingarmönnum í Reykjavík fjölgað um 72 prósent Heimilisofbeldismálin alvarlegri en áður og fundað um Úkraínu í Abu Dhabi Svona var Pallborðið með Heiðu Björgu og Pétri Játaði meira og meira eftir því sem á leið Fann innbrotsþjófinn sofandi á heimilinu Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Laugarnestangi friðlýstur sem menningarlandslag Mesti fjöldi í sögu bráðamóttökunnar Sjá meira