Refsiábyrgð stjórnenda í samráðsmálum undirstrikuð 4. janúar 2007 18:30
Fyrirtæki verða beitt stjórnvaldssektum en starfsmenn þeirra sæta refsiábyrgð ef upp kemst um ólöglegt samráð fyrirtækja, samkvæmt tillögum nefndar á vegum forsætisráðherra. Þannig er refsiábyrgð stjórnenda undirstrikuð. Þá verður rannsóknarferli slíkra mála einfaldað frá því sem nú er. Davíð Oddsson, þáverandi forsætisráðherra, skipaði nefndina að tillögu dómsmálaráðherra og viðskiptaráðherra haustið 2004. Nefndin skilaði frá sér skýrslu skömmu fyrir áramót og var hún birt í gær. Með skýrslunni fylgja drög að tvennum frumvörpum, annars vegar til breytinga á samkeppnislögum og hins vegar um breytingar á ákvæðum um viðurlög við brotum á fjármálamarkaði. Þá leggur nefndin til að skýrt verði betur í lögum hvenær á að beita sektum eða öðrum viðurlögum. Almennt leggur nefndin til að refsingum, þ.e.a.s. fangelsisvist verði beitt sparlega og þá aðeins í alvarlegustu brotunum en meiri áhersla lögð á stjórnsýsluviðurlög, eins og sektir. Nefndin leggur m.a. til að lagaheimildir verði samræmdar þannig að sama málið sé ekki í rannsókn hjá eftirlitsstofnun, lögreglu og samkeppniseftirliti á sama tíma, eins og sýnt sig að gerst hefur í tilteknum málum. Lagt er til að eftirlitsstofnun í hverju tilviki ákveði hvort ljúka eigi máli með stjórnsýsluviðurlögum, eða hvort málið verði látið ganga lengra og það kært til lögreglu. Það er einnig athygliverð nýjung að nefndin leggur til að starfsmenn fyrirtækja, sem taka þátt í ólöglegu samráði milli fyrirtækja, sæti einir refsiábyrgð - en eins og lögum er háttað í dag geta fyrirtæki einnig sætt slíkri ábyrgð. Ef tillögur nefndarinnar ná fram að ganga, munu fyrirtæki sem tengjast brotum um samráð, eingöngu sæta stjórnvaldssektum eða sviftingu réttinda. Með þessu má segja að nefndin undirstriki að fyrirtæki sem slík fremji ekki brot, heldur einstaklingarnir sem stjórna þeim og vinna hjá þeim. Lagt er til að hámarks fangelsisrefsing vegna ólöglegs samráðs verði sex ár. Þá leggur nefndin til að þeir starfsmenn fyrirtækja sem upplýsa um brot sem þessi, geti fengið lækkun refsingar og sektir fyrirtækja geti lækkað vegna samvinnu við yfirvöld, vegna þess hve erfitt getur verið að upplýsa brot sem þessi.
Mest lesið Játaði meira og meira eftir því sem á leið Innlent Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Erlent Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Innlent Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Erlent „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Innlent Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Erlent Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Innlent „Við getum gert það sem við viljum“ Erlent Pallborðið: Síðasta einvígið Innlent Kom ekki á teppið Innlent Fleiri fréttir Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Samfylkingarmönnum í Reykjavík fjölgað um 72 prósent Heimilisofbeldismálin alvarlegri en áður og fundað um Úkraínu í Abu Dhabi Pallborðið: Síðasta einvígið Játaði meira og meira eftir því sem á leið Fann innbrotsþjófinn sofandi á heimilinu Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Laugarnestangi friðlýstur sem menningarlandslag Mesti fjöldi í sögu bráðamóttökunnar Leita manns vegna kynferðisbrots við Austurbæjarbíó Sósíalistar sendu nær allar tekjur í félög tengdum fyrri stjórn Mætast í Pallborðinu á lokasprettinum Kafað í óbirta og umtalaða skýrslu um Félagsbústaði Rannsóknaskipin gera hlé á loðnuleit vegna óveðurs Viðreisn býður fram undir merkjum Samfylkingar Þrjú erlend her- og varðskip í Reykjavík Ósammála um hvort lögregla hafi gefið fyrirmæli „Ég á þetta og má þetta“ Sjá meira