Borgin vill reka tilraunaframhaldsskóla 19. mars 2007 18:30
Menntaráð Reykjavíkur vill að þegar verði teknar upp viðræður við menntamálaráðuneytið um að borgin taki að sér að reka einn af framhaldsskólum borgarinnar í tilraunaskyni. Formaður menntaráðs segir að í slíkum skóla ætti að bjóða upp á einstaklingsmiðað og sveigjanlegt nám. Á fundi menntaráðs í dag var lagt til að borgarráð tæki þegar upp viðræður um þetta við menntamálaráðuneytið. En þetta mál hefur einnig verið ril umræðu innan Sambands íslenskra sveitarfélaga og ljóst að nokkur áhugi er innan sveitarfélaganna að taka þennan málaflokk alfarið yfir frá ríkinu. "Það er hins vegar jafnframt eðlilegt að Reykjavíkurborg sem er stærsti rekstraraðili grunnskóla landsins hafi forgöngu um þetta og forystu," segir Júlíus Vífill Ingvarsson formaður menntaráðs.´ Menntaráð sjái fjölmörg tækifæri þróunar í framhaldsskólunum í Reykjavík. Í þessu sambandi sé enginn einn skóli nefndur en mörg spennandi tækifæri séu í Fjölbrautarskólanum í Breiðholti. Það er álit menntaráðs að grunnskólanum hafi vegnað vel eftir að sveitarfélögin tóku hann yfir frá ríkinu. Júlíus Vífill segir mörg tækifæri felast í því að taka yfir framhaldsskólana. Eitt af því sem horft er til er að þjóna nemendum sem hafa viljað hefja framhaldskólanám áður en grunnskólanámi lýkur, og þannig stytt leið sína í gegnum framhaldsskólann. Tilraunaskóli sem þessi að hálfu Reykjavíkurborgar myndi bjóða upp á einstaklingsmiðað og sveigjanlegt nám. Þetta hefur ekki verið rætt við menntamálaráðherra. "Nei og það er rétt að taka fram að það hefur heldur ekki verið rætt við skólastjórnendur í Fjölbrautarskólanum í Breiðholti," segir Júlíus Vífill. Hann sé heldur ekki eini skólinn sem komi til greina. Það liggi heldur ekki fyrir hver afstaða menntamálaráðherra verði í málinu, en vonandi verði hún góð.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Fleiri fréttir Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Sjá meira